Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 345/2007

Nr. 345/2007 26. mars 2007
REGLUR
um Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands.

1. gr.

Almennt.

Rannsóknastofnun um lyfjamál er hlutlaus og óháð rannsókna- og fræðslustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Meginmarkmið stofnunarinnar er að auka rannsóknir og fræðslu um lyfjamál á Íslandi og alþjóðlega. Rannsóknastofnun um lyfjamál er ætlað að vera víðtækur vettvangur rannsókna á sviði lyfjastefnu, einkum öllu því er lýtur að skynsamlegri lyfjanotkun, lyfjafaraldsfræði og lyfjahagfræði. Markmið stofnunarinnar er jafnframt að miðla vísindalegri þekkingu um lyfjamál og laða fræðimenn til starfa á þessu sviði. Að rannsóknastofnuninni standa fastir kennarar í lyfjafræði og samstarfsaðilar innan háskólans og af vettvangi. Stofnunin starfar á vegum lyfjafræðideildar. Deildar­forseti og formaður stjórnar gera starfssamninga við aðila utan Háskóla Íslands.

2. gr.

Hlutverk.

Hlutverk Rannsóknastofnunar um lyfjamál er:

  1. að vinna þjónustuverkefni á sviði lyfjamála fyrir atvinnulíf og hið opinbera,
  2. að auka samstarf milli fræðimanna, atvinnulífs og opinberra aðila á sviði lyfjamála og vera meðal annars leiðandi í rannsóknum á sviði skynsamlegrar lyfjanotkunar og lyfjahagfræði,
  3. að vinna að rannsóknarverkefnum og úttektum meðal annars í samstarfi við virta erlenda vísindamenn,
  4. að treysta samvinnu milli samstarfsaðila í þágu þverfaglegs náms, efla skilning á þeim hagsmunum sem þverfaglegu námi tengjast og stuðla að auknum fjölda námskeiða á sviði lyfjamála innan og utan hefðbundins háskólanáms,
  5. að auka möguleika námsmanna og kennara til náms- og kennsluskipta,
  6. veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita nemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknastörf á vegum setursins eftir því sem unnt er,
  7. að gangast fyrir símenntunarnámskeiðum, ráðstefnum, umræðufundum og fyrir­lestrum um efni sem varða starfssvið setursins og
  8. að vinna að útgáfu rita um lyfjastefnu og lyfjamál.

3. gr.

Aðstaða.

Lyfjafræðideild lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.

Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.

Stjórn.

Stjórn stofnunarinnar er skipuð 7 mönnum til þriggja ára í senn. Lyfjafræðideild tilnefnir einn sem er jafnframt formaður stjórnar. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands og rektor Háskóla Íslands skipa hvor sinn fulltrúa. Forseti lyfjafræðideildar tilnefnir 4 stjórnarmenn frá samstarfsaðilum stofnunarinnar, sem samningar hafa verið gerðir við, sbr. 1. gr. Deildarráð lyfjafræðideildar staðfestir skipun stjórnar.

5. gr.

Stjórnarfundir.

Stjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. einu sinni á misseri. Annar þeirra er aðalfundur. Aðild að aðalfundi auk stjórnar eiga allir samningsbundnir starfsaðilar, fjárstyrktaraðilar og kennarar við Háskóla Íslands sem tengjast stofnuninni.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrir­vara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.

Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti lyfjafræðideildar eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.

Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir for­manns­störfum.

Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundar­gerða skulu send forseta lyfjafræðideildar. Forstöðumaður situr stjórnarfundi með mál­frelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

6. gr.

Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfs­reglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starf­semi stofnunarinnar.

Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar um fjárveitingar og skiptingar þeirra ásamt skiptingu annarra tekna. Stjórn getur skipað þriggja manna framkvæmdastjórn sam­kvæmt nánari vinnureglum. Jafnframt getur stjórn skipað ráðgjafanefnd samkvæmt nánari vinnureglum.

7. gr.

Forstöðumaður og starfsmenn.

Stjórn stofnunarinnar er heimilt að ráða forstöðumann. Hann skal að jafnaði uppfylla almenn hæfisskilyrði skv. reglum um Háskóla Íslands. Forstöðumaður stofnunarinnar annast daglegan rekstur hennar, þar á meðal eftirlit með starfsmönnum hennar, fjár­málum og rannsóknarverkefnum. Stjórnin setur forstöðumanni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans.

Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer stjórn stofn­unarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið. Rannsókna­stofnun um lyfjamál kemur að kennslu í lyfjafræðideild, eftir nánara samkomu­lagi.

8. gr.

Fjármál.

Tekjur stofnunarinnar eru eftirfarandi:

  1. framlag frá lyfjafræðideild,
  2. framlög frá öðrum deildum háskólans ef því er að skipta,
  3. framlag frá samstarfsaðilum,
  4. styrkir til einstakra verkefna,
  5. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  6. tekjur af útgáfustarfsemi og námskeiðahaldi,
  7. aðrar tekjur, t.d. Þróunarsjóður Háskóla Íslands, gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Stofnunin hefur sjálfstætt fjárhald en lyfjafræðideild ber á henni fjárábyrgð. Fjárhagsáætlanir og uppgjör skulu kynnt forseta lyfjafræðideildar.

Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starf­semi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnis­laga.

Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 72. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

9. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 2. mgr. 9. gr. laga nr. 41/1999 um Háskóla Íslands, sbr. 27. gr. reglna nr. 458/2000 fyrir Háskóla Íslands, öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 26. mars 2007.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 23. apríl 2007