Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
999/2009
|
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á viðauka 3, I: Á eftir ríkjaheitinu Makaó kemur: Makedónía (fyrrum sambandslýðveldi Júgóslavíu), að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum. Á eftir ríkjaheitinu San Maríno kemur: Serbía að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum en á ekki við um handhafa serbneskra vegabréfa sem gefin eru út af Serbnesku samræmingarstofnuninni (á serbnesku: Koodinaciona uprava). Á eftir ríkjaheitinu Suður-Kórea kemur: Svartfjallaland að því er varðar handhafa vegabréfa með lífkennum.
2. gr. Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 6. gr. og 58. gr. laga um útlendinga nr. 96 15. maí 2002 öðlast gildi þegar í stað. Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu, 18. desember 2009. Ragna Árnadóttir. Kristrún Kristinsdóttir.
|
B-deild - Útgáfud.:
18. desember 2009
|