Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 612/2012

Nr. 612/2012 11. júlí 2012
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi lóðar Lágafellsskóla, Mosfellsbæ.

Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar hefur þann 11. júlí 2012 skv. heimild í viðauka I við samþykkt nr. 596/2011 um breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, samþykkt tillögu að breytingum á deiliskipulagi á lóð Lágafellsskóla, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 8. júní 2012 með athugasemdafresti til 6. júlí 2012.
Breytingar eru þær að settir eru inn tveir nýir byggingarreitir fyrir færanlegar kennslustofur á lóðinni.
Skipulagsbreytingarnar hafa hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 11. júlí 2012,

Finnur Birgisson, skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 12. júlí 2012