Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 133/2010

Nr. 133/2010 16. febrúar 2010
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl.

1. gr.

1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna er ákveðin sem hér segir ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara:

 

Innheimtuviðvörun

  
 

Innheimtuviðvörun (ein skyldubundin viðvörun skv. 7. gr. innheimtulaga, send frá kröfuhafa eða hvers konar innheimtuaðila, m.a. lögmanni, eftir gjalddaga kröfu (eftir eindaga sé hann tilgreindur), sbr. þó 3. mgr. 5. gr. reglugerðar þessarar um sameiningu greiðsluseðils og viðvörunar)

kr.

950


 

Milliinnheimtubréf

  

2.

Milliinnheimtubréf kröfuaðila eða innheimtuaðila, m.a. lögmanna:

  

2 a

Höfuðstóll kröfu til og með 2.999 kr.

kr.

1.300

2 b

Höfuðstóll kröfu 3.000 til og með 10.499 kr.

kr.

2.100

2 c

Höfuðstóll kröfu 10.500 til og með 84.999 kr.

kr.

3.700

2 d

Höfuðstóll kröfu 85.000 kr. og yfir

kr.

5.900

3.

Fyrsta ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d)

  

4.

Önnur ítrekun milliinnheimtubréfs (sama gjald og í 2 a-d)

  

5.

Eitt símtal í milliinnheimtu

kr.

550

6.

Gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu

kr.

2.700

2. gr.

2. málsl. 7. gr. reglugerðarinnar falli brott.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr., sbr. 21. gr., innheimtulaga nr. 95/2008, öðlast þegar gildi.

Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 16. febrúar 2010.

Gylfi Magnússon.

Jónína S. Lárusdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2010