Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 187/2015

Nr. 187/2015 10. febrúar 2015
REGLUGERÐ
um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samn­inginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB- og ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 frá 16. desember 28 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli og um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1601/91, reglu­gerðum (EB) nr. 2232/96 og (EB) nr. 110/2008 og tilskipun 2000/13/EB. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndar­innar nr. 50/2011, frá 21. maí 2011. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55, frá 7. október 2011, bls. 123.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 872/2012 frá 1. októ­ber 2012 um samþykkt skrárinnar yfir bragðefni, sem kveðið er á um í reglugerð Evrópu­þingsins og ráðsins (EB) nr. 2232/96, og upptöku hennar í I. viðauka við reglu­gerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 og um niðurfellingu reglu­gerðar fram­kvæmda­stjórnarinnar (EB) nr. 1565/2000 og ákvörðunar fram­kvæmda­stjórnarinnar 1999/217/EB. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 34/2013, frá 16. mars 2013. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20, frá 28. mars 2013, bls. 936.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 545/2013 frá 14. júní 2013 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar bragðefnið 3-asetýl-2,5-dímetýlþíófen. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 222/2013, frá 14. desember 2013. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 4, frá 23. janúar 2014, bls. 556.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 985/2013 frá 14. október 2013 um breytingu og leiðréttingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar tiltekin bragðefni. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2014, frá 9. apríl 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23, frá 10. apríl 2014, bls. 166.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 246/2014 frá 13. mars 2014 um breytingu á I. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 að því er varðar að taka tiltekin bragðefni af skrá Sambandsins. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 215/2014, frá 1. nóvember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 73, frá 4. desember 2014, bls. 459.

    2. gr.

    Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

    3. gr.

    Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

    4. gr.

    Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

    5. gr.

    Reglugerð þessi öðlast þegar gildi. Við gildistöku reglugerðarinnar fellur úr gildi reglugerð nr. 980/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1334/2008 um bragðefni og tiltekin innihaldsefni matvæla sem hafa bragðgefandi eiginleika til notkunar í og á matvæli og um breytingu á reglugerð ráðsins (EBE) nr. 1601/91, reglugerðum (EB) nr. 2232/96 og (EB) nr. 110/2008 og tilskipun 2000/13/EB, með síðari breytingum.

    Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. febrúar 2015.

    F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

    Ólafur Friðriksson.

    Eggert Ólafsson.

    B deild - Útgáfud.: 24. febrúar 2015