Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 414/2013

Nr. 414/2013 11. apríl 2013
REGLUGERÐ
um innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 623/2012 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 222/2012 frá 7. desember 2012 um breytingu á VII. viðauka (Gagnkvæm viðurkenning á starfsmenntun og hæfi) við EES-samninginn gildir reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), nr. 623/2012 frá 7. desember um breytingu á viðauka II með tilskipun Evrópusambandsins og ráðsins nr. 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB), nr. 623/2012 er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópusambandsins nr. 14, 20. árgangi 2013, bls 703.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 18, 20. árgangi 2013, bls. 29.

3. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 623/2012 skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 9. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 11. apríl 2013.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 2. maí 2013