Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 68/2012

Nr. 68/2012 12. janúar 2012
AUGLÝSING
um hættumat vegna ofanflóða fyrir Mosfellsbæ.

Samkvæmt 2. og 4. mgr. 4. gr. laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997 með síðari breytingum, hefur ráðherra þann 16. desember 2011 staðfest tillögur hættumatsnefndar Mosfellsbæjar að hættumati vegna ofanflóða fyrir Mosfellsbæ.

Hættumatið hefur verið auglýst og kynnt í samræmi við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 49/1997, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats.

Hættumatið öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 12. janúar 2012.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2012