Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 159/2008

Nr. 159/2008 23. desember 2008
LÖG
um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 6. gr. laganna:
    a.    Í stað orðanna „ellefu hundraðshluta álags“ í 1. málsl. kemur: sjö hundraðshluta álags.
    b.    2. málsl. fellur brott.
    c.    Í stað orðanna „1. janúar og 1. júlí ár hvert“ í 3. málsl. kemur: fyrsta dag hvers mánaðar.

2. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2009.

Gjört á Bessastöðum, 23. desember 2008.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Björgvin G. Sigurðsson.

A deild - Útgáfud.: 30. desember 2008