Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 534/2012

Nr. 534/2012 20. júní 2012
AUGLÝSING
(VI) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 um úthlutun byggða­kvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélagi:

Ísafjarðarbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 1182 frá 21. desember 2011 gilda um úthlutun byggðakvóta byggðarlaga í Ísafjarðarbæ með eftirfarandi viðauka/breytingum:

a)

a-liður 1. gr. breytist og verður:

Hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum, eða frístundaveiðileyfi skv. 2. tl. 4. mgr. 6. gr. sömu laga, við lok umsóknarfrests.

b)

Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. breytist og verður svohljóðandi:

Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. desember 2011.

c)

Við 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl. sem verður 1. málsl., svo­hjóðandi:

Það aflamark sem eftir er af byggðakvóta Ísafjarðarbæjar frá fiskveiðiárinu 2010/2011, 139,8 þorskígildistonn skiptist milli fiskiskipa á Flateyri miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorsk­ígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.

d)

Ákvæði 1. málsl. sem verða 2. og 3. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags skal vera þannig að 50% af byggðakvóta hvers byggðarlags skal úthluta jafnt til fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. annarra en skipa með frístundaveiðileyfi, þó að hámarki 5 tonn á hvert skip. Ef 5 tonna hámark á skip nær ekki 50% af úthlutuðum byggða­kvóta skal úthluta því sem eftir er eins og gert er ráð fyrir að úthluta hinum 50%, sbr. hér að neðan.

Að öðru leyti skal úthlutun fara fram til einstakra fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í sveitar­félag­inu, sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorskígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2010 til 31. ágúst 2011.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. júní 2012.

F. h. r.

Arndís Á. Steinþórsdóttir.

Sigríður Norðmann.

B deild - Útgáfud.: 20. júní 2012