Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 367/2009

Nr. 367/2009 27. mars 2009

REGLUR
um bann við netaveiði göngusilungs við Faxaflóa.

1. gr.

Bönnuð er netaveiði göngusilungs í sjó árin 2009 og 2010 frá og með 10. júní til og með 10. ágúst með strandlengju í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu frá friðunarsvæði Hítarár í norðri að Suðurflös á Akranesi í suðri.

2. gr.

Brot á ákvæðum þessara reglna varða sektum samkvæmt lögum nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal fara að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungveiði með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Koma þær í stað reglna nr. 372/2004 um sama efni.

4. gr.

Til viðbótar þeim takmörkunum, sem hér eru settar, skal vakin athygli á því að allar neta­veiðar á silungi í sjó eru óheimilar frá kl. 22.00 á föstudagskvöldi til kl. 10.00 á þriðjudags­morgni á löglegum veiðitíma yfir sumarið samkvæmt 2. mgr. 18. gr. ofan­greindra laga.

Reykjavík, 27. mars 2009.

Þórður Ásgeirsson fiskistofustjóri.

Árni Ísaksson, lax- og silungsveiðisvið.


B-deild - Útgáfud.: 15. apríl 2009

  Til baka