1. gr. Við 2. mgr. 2. gr. reglnanna bætist nýr töluliður sem verður 4. tl. og orðast svo: Störf vegna tímabundinna vinnumarkaðsúrræða á vegum stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. 2. gr. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 23. janúar 2013. F. h. r. Guðmundur Árnason. Gunnar Björnsson. |