Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1248/2011

Nr. 1248/2011 19. desember 2011
AUGLÝSING
um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum.

Á grundvelli laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara tilkynnir Neytendastofa að flutningsjöfnunargjald á neðangreindum olíuvörum verður sem hér segir frá og með 1. janúar 2012 og gildir gjaldið þar til annað verður ákveðið.

bifreiðabensín

0,43 kr. á lítra

gasolía

0,88 kr. á lítra

aðrar olíur og blöndur til brennslu

0,10 kr. á kg

flugvélabensín

0,11 kr. á lítra

flugsteinolía (þotueldsneyti)

0,14 kr. á lítra

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 103/1994 um jöfnun á flutningskostnaði olíuvara skulu dreifingaraðilar samkvæmt 1. gr. laganna, aðrir en þeir sem annast innanlandssölu á olíu í öllum landshlutum, greiða flutningsjöfnunargjaldið við innheimtu aðflutningsgjalda miðað við innflutt móttekið magn. Tollstjórinn í Reykjavík og sýslumenn utan Reykjavíkur annast samkvæmt sömu grein innheimtu gjaldsins og skulu skila því til flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara.

Auglýsing þessi kemur í stað auglýsingar nr. 1022/2010.

Neytendastofu, 19. desember 2011.

Tryggvi Axelsson forstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2011