Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 223/2015

Nr. 223/2015 18. febrúar 2015
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 92. gr.:

  1. Á eftir staflið h í upptalningu kennslugreina í 1. mgr. 92. gr. bætist við nýr stafliður, svohljóðandi: Til MA-prófs í samanburðarstjórnmálum.
  2. Á eftir 15. mgr., um diplómanám í hagnýtri jafnréttisfræði, bætist við ný málsgrein, svohljóðandi: Diplómanám í smáríkjafræðum: smáríki Evrópu (Small State Studies: Small States in Europe) er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambæri­legu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í MA-nám að uppfylltum inntökuskilyrðum.

2. gr.

2. málsl. 7. mgr. 97. gr. breytist og orðast svo: Námið er samstarfsverkefni tveggja deilda háskólans, guðfræði- og trúarbragðafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar, í samræmi við sérstakt samkomulag deildanna.

3. gr.

Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 18. febrúar 2015.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 5. mars 2015