Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. og 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt eftirtaldar deiliskipulagsáætlanir og breytingar á deiliskipulagi: Í Úlfarsfellslandi, landnúmer 190836. Deiliskipulag frístundalóðar, sem er um 0,62 ha að stærð. Samkvæmt skipulaginu er heimilt að reisa á lóðinni frístundahús allt að 70 m² auk 20 m² geymsluhúss. Samþykkt í bæjarstjórn skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga 15. ágúst 2007. Í landi Miðdals II, landnúmer 192803. Deiliskipulag frístundalóðar, sem er um 1 ha að stærð. Samkvæmt skipulaginu er heimilt að reisa á lóðinni frístundahús allt að 110 m² auk 20 m² geymsluhúss. Samþykkt í bæjarstjórn skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga 29. ágúst 2007. Hamrabrekka í Miðdalslandi. Breyting á deiliskipulagi þriggja frístundalóða. Breytingin felst í því að leyfð stærð frístundahúsa er aukin þannig að þau mega vera allt að 110 m² auk 20 m² geymsluhúss. Samþykkt í bæjarstjórn skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga 4. júlí 2007. Nýr deiliskipulagsuppdráttur kemur í stað eldri uppdráttar sem samþykktur var 11. ágúst 2005 og fellur hann þar með úr gildi. Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og breytingar á deiliskipulagi hafa hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast þær þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 20. september 2007, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |