Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1299/2011

Nr. 1299/2011 30. desember 2011
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um skil á upplýsingum á árinu 2012, vegna framtalsgerðar o.fl., samkvæmt 92. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að eftirtöldum upplýsingum og gögnum vegna ársins 2011 skuli skilað eigi síðar en 10. febrúar 2012. Upplýsingum þessum skal, ef unnt er, skilað á tölvutæku formi samkvæmt lýsingum á vef ríkisskattstjóra á slóðinni www.rsk.is/fagadilar/hughus.

Sé upplýsingunum ekki skilað á tölvutæku formi skal þeim skilað á næstu skattstofu eða til ríkisskattstjóra Laugavegi 166, eigi síðar en 30. janúar 2012, á tilgreindum eyðu­blöðum sem einnig má finna á vef ríkisskattstjóra, www.rsk.is.

  1. Launamiðar og verktakamiðar (RSK 2.01). Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi, lífeyri, bætur, styrki, happdrættis- og talna­vinninga (skattskylda sem óskattskylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni eða vinnu) eða aðrar greiðslur sem framtalsskyldar eru og/eða skattskyldar skv. 7. gr. laga nr. 90/2003.
  2. Bifreiðahlunnindamiðar (RSK 2.035). Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa haft kostnað af kaupum, leigu eða rekstri fólksbifreiðar og ekki fylla út RSK 4.03 vegna hennar.
  3. Hlutafjármiðar (RSK 2.045). Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlags­hlutafélög, samvinnuhlutafélög og sparisjóðir. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtalningsblaði (RSK 2.04).
  4. Launaframtal (RSK 1.05). Skilaskyldir eru einstaklingar með eigin atvinnurekstur, sem telja fram á pappír, og óskattskyld félög sem ekki skila rafrænu skattframtali RSK 1.06 og sem greiddu laun á árinu 2011. ATH. Launaframtali er almennt skilað rafrænt sem hluta af almennum framtalsskilum framteljanda, á forminu RSK 1.04, RSK 1.06 eða RSK 4.05, og gilda þá almennir framtalsfrestir um launa­framtals­skilin.
  5. Viðskipti með hlutabréf. Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf. Sundurliða skal upplýsingar um hver viðskipti á kennitölu eða erlent skatt­auðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila.
  6. Bankainnstæður. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um alla bankareikninga, staðgreiðsluskyldar vaxtatekjur, þ.m.t. afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið til erlendra eða innlendra aðila og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu reikninganna í árslok. Þá skal upplýsa um alla vexti af kröfum greiddum erlendum aðilum, sbr. 8. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2003 og þann afdrátt stað­greiðslu, sem skilaskyldur er og stöðu þessara krafna í árslok.
  7. Viðskipti með verðbréf önnur en hlutabréf, sbr. 5. tölul. hér að ofan. Tilgreina skal, sundurliðað á kennitölu eða erlent skattauðkennisnúmer (TIN) viðskiptaaðila, upplýsingar um öll verðbréf, s.s. kröfur og hlutdeildarskírteini, vaxtatekjur, þ.m.t. afföll og gengishagnað, hvort heldur greitt hefur verið erlendum eða innlendum aðilum og afdregna staðgreiðslu af þeim, og stöðu í árslok.
  8. Lánaupplýsingar (bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán). Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga. Jafnframt skal veita upplýsingar um fjárhæðir eftirgefinna eða afskrifaðra lána að hluta eða öllu leyti.
  9. Stofnsjóðsmiðar (RSK 2.065). Skilaskyld eru öll samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Sé upplýsingunum ekki skilað á rafrænu formi skal jafnframt skila samtaln­ings­blaði (RSK 2.06).
  10. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit (RSK 2.025). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi, og skattskyldar eru skv. 3. tölul. (þjónusta eða starfsemi innt af hendi hér á landi) og 6. tölul. (leiga og greiðslur fyrir afnot eða hagnýtingu einkaleyfa og hvers konar annarra leyfa, réttinda, sérþekkingar, o.fl.) 3. gr. laga nr. 90/2003.
  11. Greiðslumiðar - leiga eða afnot (RSK 2.02). Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum, sbr. 1. og 2. tölulið C-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, svo og fyrir greiðslur fyrir sérhver önnur afnot af réttindum, s.s. aflaheimildum, einkaleyfum eða sérþekkingu, enda sé ekki gerð grein fyrir þessum greiðslum á öðrum skilagreinum sem taldar eru upp hér að framan.
  12. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi (RSK 2.085). Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003. Sama á við um sölu­réttar­samninga.
  13. Fjármagnstekjumiði. Þeir aðilar sem greitt hafa fjármagnstekjur skulu skila þessum miða og tilgreina þar sundurliðun fyrir þá aðila sem hafa móttekið þær og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða smærri innheimtuaðila, t.d. lögfræðistofur. Þessum miða er eingöngu hægt að skila rafrænt (sjá www.rsk.is/fagadilar/hughus/wsgagnaskil).

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 92. og 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 30. desember 2011.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2012