Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 938/2010

Nr. 938/2010 18. nóvember 2010
REGLUGERÐ
um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á soðnum eggjum og eggjarauðum.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt viðaukum III A og IV A, við tollalög nr. 88/2005, með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárn.

kg

%

kr./kg

0408.1901

Gerilsneyddar eggjarauður með 7% saltinnihaldi í ≥ 5 kg umbúðum

01.01. - 31.12.11

ótilgr.

0

39

0408.9901

Soðin egg í ≥ 10 kg umbúð­um

01.01. - 31.12.11

ótilgr.

0

91

Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabils.

3. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 509/2004, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

4. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti sakamála.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. og 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 18. nóvember 2010.

Jón Bjarnason.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 6. desember 2010