Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 20/2011

Nr. 20/2011 4. janúar 2011
AUGLÝSING
fjármálaráðherra um álagningu opinberra gjalda á árinu 2011.

1. gr.

Ríkisskattstjóri skal eigi síðar en 25. júlí 2011 hafa lokið álagningu opinberra gjalda á menn. Álagningu lögaðila með sjálfstæða skattaðild skal vera lokið eigi síðar en 31. október 2011. Álagningu á lögaðila sem fengið hafa heimild til að hafa annað reikningsár til skattskila en almanaksárið skal lokið eigi síðar en sex mánuðum eftir að því reikningsári lýkur.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem sett er með heimild í 93. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 4. janúar 2011.

F. h. r.

Guðmundur Árnason.

Ingibjörg Helga Helgadóttir.

B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2011