Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 806/2007

Nr. 806/2007 27. ágúst 2007
AUGLÝSING
um deiliskipulag iðnaðarsvæðis við Desjamýri, Mosfellsbæ.

Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur þann 4. júlí 2007 í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt deiliskipulag iðnaðarsvæðis við Desjamýri austan núverandi iðnaðarsvæðis við Flugumýri. Skipulagið tekur til 8 ha svæðis með 10 lóðum, 3.100 til 8.800 m² að stærð.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. Við gildistökuna fellur úr gildi deiliskipulag fyrir Flugumýri sem samþykkt var í bæjarstjórn 10. maí 2006.

F.h. Mosfellsbæjar, 27. ágúst 2007,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 7. september 2007