Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 124/2006

Nr. 124/2006 30. janúar 2006

GJALDSKRÁ
Siglingastofnunar Íslands.

I. KAFLI

Gjöld skv. 28. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003.

1. gr.

Gjöld fyrir skoðanir Siglingastofnunar á skipum og búnaði þeirra.

Fyrir skoðanir á skipi og búnaði þess sem Siglingastofnun framkvæmir skal eigandi skips greiða vegna undirbúnings skoðunar, skoðunar og frágangs skjala að skoðun lokinni samkvæmt þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar sem birt er á heimasíðu hennar. Gjald fyrir útgáfu haffærisskírteinis skal vera kr. 2.200. Jafnframt skal eigandi skips greiða fargjöld skoðunarmanns Siglingastofnunar, dagpeninga samkvæmt kjarasamningum starfs­manna ríkisins og útselda vinnu á ferðatíma skoðunarmanns. Ef fleiri en eitt skip eru skoðuð í hverri ferð skoðunarmanns skiptist sameiginlegur kostnaður hlutfallslega.

Fyrir skoðun á notuðum skipum sem fyrirhugað er að flytja til landsins og skrá á íslenska skipaskrá fer með sama hætti og skv. 1. mgr. Fari skoðun fram erlendis er heimilt að innheimta fyrirfram hjá eiganda skips upphæð sem svarar til fargjalda og áætlaðra dag­peninga skoðunarmanna.

Siglingastofnun skal endurkrefja skipseiganda um útlagðan kostnað vegna sérfræði­þjónustu sem stofnunin kaupir vegna skoðunar og eftirlits með skipum og búnaði þeirra.

Fyrir fljótandi ekjubrýr, flotbryggjur og önnur mannvirki á skipaskrá sem ekki eru háð árlegu eftirliti sem og skoðun flotkvía greiðist samkvæmt þjónustugjaldskrá Siglinga­stofnunar Íslands.

2. gr.

Gjöld vegna útgáfu skírteina.

Fyrir útgáfu eftirtalinna skírteina skal greiða kr. 5.400, en fyrir framlengingu eða áritun þeirra greiðist kr. 3.200, en fyrir skoðanir á skipi og búnaði þess sem Siglingastofnun framkvæmir í tengslum við útgáfu skírteina greiðist skv. 1. mgr. 1. gr.:

Skírteini skv. rg. 122/2004:
Öryggisskírteini fyrir fiskiskip
Undanþáguskírteini fyrir fiskiskip
Önnur skírteini

Skírteini skv. rg. 666/2001:
Öryggisskírteini fyrir farþegaskip
Önnur skírteini

Skírteini skv. rg. 743/2001:
Öryggisskírteini fyrir farþegaskip í millilandasiglingum
Undanþáguskírteini fyrir farþegaskip í millilandasiglingum
Önnur skírteini

Skírteini skv. alþjóðasamningum um öryggi mannslífa á hafinu (SOLAS):
Öryggisskírteini farþegaskips
Öryggisskírteini flutningaskips (smíði og búnaður, öryggisbúnaður, fjarskiptabúnaður)
Undanþáguskírteini
ISM DOC skírteini
ISM SMC skírteini
Öryggisskírteini fyrir flutningaskip
Undanþáguskírteini
Önnur skírteini

Önnur skírteini:
Alþjóðahleðslumerkjaskírteini
Undanþáguskírteini vegna hleðslumerkja
Alþjóðlegt olíumengunarvarnaskírteini
FESI skírteini
SOPEP samþykkt öryggisáætlun
SOPEP samþykki á endurgerðri öryggisáætlun

3. gr.

Nýsmíðagjald.

Vegna skipa sem eru í smíðum skal greiða nýsmíðagjald. Fyrir yfirferð og samþykkt smíða­lýsinga og teikninga, skipamælingar, yfirferð stöðugleikagagna og hleðslu- og stöðug­leika­prófun, eftirlit með smíði skipsins, skoðun á skipi og búnaði þess og skráningu skips skal greiða nýsmíðagjald. Gjaldið skal miðast við framlagða vinnu starfsmanna Siglinga­stofnunar Íslands samkvæmt útseldum taxta stofnunarinnar. Jafnframt skal greiða ferðakostnað og dagpeninga starfsmanna Siglingastofnunar Íslands vegna ferða­laga vegna nýsmíðinnar. Auk nýsmíðagjalds skal greiða fyrir skírteini og önnur skips­skjöl í samræmi við önnur ákvæði reglugerðar þessarar.

Gjaldið er innheimt að loknum hverjum verkþætti skv. framangreindri upptalningu.

Fari nýsmíði fram erlendis er heimilt að innheimta fyrirfram hjá eiganda skips upphæð sem svarar til fargjalda og áætlaðra dagpeninga skoðunarmanna.

Lokagreiðsla fer fram við afhendingu skírteina skipsins og skipsskjala. Verkkaupi skipa­smíðar og eigandi skips að smíði lokinni eru sameiginlega ábyrgir fyrir greiðslu nýsmíða­gjalds.

4. gr.

Eftirlit með viðgerðum.

Fyrir eftirlit með viðgerðum skal greiða skv. þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar Íslands.

Fari viðgerð fram erlendis er heimilt að innheimta fyrirfram hjá eiganda skips upphæð sem svarar til fargjalda og áætlaðra dagpeninga skoðunarmanna.

5. gr.

Hleðslumerki.

Fyrir hleðslumerkjaútreikninga og útgáfu skírteina ásamt hleðslumerkjaskoðun, sem ekki fellur undir nýsmíði, skal greiða:

 

kr.   

Skip til og með 500 bt. (brúttótonn)

14.400

Skip 501 bt. til og með 1.000 bt.

19.000

Skip 1.001 bt. til og með 2.000 bt.

23.900

Skip 2.001 bt. til og með 5.000 bt.

28.700

Hleðslumerkjaútreikningar skipa stærri en 5.000 bt. greiðast skv. þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar Íslands.

II. KAFLI

Gjöld skv. 20. gr. laga um skráningu skipa, nr. 115/1985.

6. gr.

Skráning skipa og útgáfa skipsskjala.

Fyrir skráningu skips og útgáfu skipsskjala skal greiða:

1. Íslenskt mælibréf og skráningarskírteini fyrir skip

kr.   

allt að 15 m að mestu lengd

6.500

2. Þjóðernisskírteini

10.900

3. Mælibréf

6.500

4. Staðfest afrit af mælibréfi, skírteini

1.300

5. Einkaleyfi á skipsnafni

37.200

6. Afskráning skips

2.200

7. Vottorð um útstrikun skipa af aðalskipaskrá

2.200

Við eigendaskipti og umskráningu skips skulu öll áfallin ógreidd gjöld skv. gjaldskrá þessari greidd að fullu.

Heimilt er að taka hálft gjald fyrir endurútgáfu íslensks mælibréfs og skráningarskírteinis fyrir skip allt að 15 m að mestu lengd ef um eina breytingu er að ræða er varðar mæling­una og útreikninga er ekki þörf.

III. KAFLI

Gjöld skv. 9. gr. laga um skipamælingar, nr. 146/2002.

7. gr.

Mæling skipa.

Fyrir endurmælingu skips og útgáfu mælibréfs eða yfirlýsingu skal greiða:

Samkvæmt Oslóarsamþykkt:

kr.   

Fyrir opna báta

11.600

Þilfarsskip allt að 25 brl.

18.900

Þilfarsskip 25 brl. til og með 100 brl.

26.400

Þilfarsskip 101 brl. til og með 250 brl.

41.900

Þilfarsskip 251 brl. til og með 500 brl.

64.000

Þilfarsskip 501 brl. til og með 1.600 brl.

91.000

Þilfarsskip 1.601 brl. til og með 5.000 brl.

120.500

Þilfarsskip 5.001 brl. og stærri greiðist skv. þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar Íslands.

Samkvæmt íslenskum mælingarreglum og Lundúnasamþykkt frá 1969:

Flokkur

 

kr.   

I.

Fyrir skip allt að 15 m mestu lengd

11.600

II. A

Skip 15,01 m mesta lengd – 24,00 m skráningarlengd.

 
 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning).

 
 

Vinna eftir mælingum og teikningum, útgáfa skírteinis

54.200

II. B

Eftirlitsmæling um borð.

 
 

Vinna við útreikning eftir línu- eða bandateikningum og öðrum teikningum


37.900

III. A

Skip 24,01 m – 45,00 m skráningarlengd.

 
 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning).

 
 

Vinna eftir mælingum og teikningum, útgáfa mælibréfs

98.500

III. B

Eftirlitsmæling um borð.

 

Vinna við útreikning eftir línuteikningu eða banda­teikningu og öðrum stálteikningum og útgáfa mælibréfs


65.700

IV. A

Skip 45,01 m – 60,0 m skráningarlengd.

 
 

Mæling í slipp (engin línu- eða bandateikning).

 
 

Vinna eftir mælingum og teikningum og útgáfa mæli­bréfs


137.300

IV. B

Eftirlitsmæling um borð.

 
 

Vinna við útreikning eftir línu- eða bandateikningu og öðrum stálteikningum og útgáfa mælibréfs


98.500

V.

Skip 60,01 m skráningarlengd og lengri.

 
 

Greiðsla skv. þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar Ís­lands.

 

Fyrir endurskoðun á mæliskýrslum gerðum af öðrum aðila en Siglingastofnun Íslands samkvæmt Lundúnasamþykkt um mælingu skipa frá 1969 greiðist:

 

kr.   

1.

Fyrir skip til og með 45 m skráningarlengd

22.600

2.

Fyrir skip yfir 45 m skráningarlengd

37.600

Að auki skal greiða kostnað á ferðalögum innanlands og erlendis vegna mælinga skv. þjónustugjaldskrá Siglingastofnunar Íslands.

IV. KAFLI

Gjöld skv. 14. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa
og flutningaskipa, nr. 76/2001.

8. gr.

Skírteini vegna farþegaskipa og flutningaskipa.

  

kr.   

1.

Útgáfa alþjóðlegs atvinnuskírteinis (STCW) til starfa á farþega­skipum og flutningaskipum
- endurnýjun


8.800
4.400

2.

Útgáfa áritunar vegna viðurkenningar á erlendu alþjóðlegu atvinnuskírteini (STCW) á farþegaskipum og flutningaskipum
- endurnýjun


8.800
4.400

3.

Undanþága til starfa á farþegaskipum og flutningaskipum til allt að 6 mánaða


5.400

4.

Útgáfa öryggismönnunarskírteinis fyrir farþegaskip og flutn­ingaskip


11.100

V. KAFLI

Gjöld skv. 6. gr. laga um köfun, nr. 31/1996.

9. gr.

Gjöld fyrir skráningu og skoðun köfunarbúnaðar.

Eigandi köfunarbúnaðar, sem ætlaður er til að nota við köfun í atvinnuskyni, greiðir eftir­talin gjöld fyrir skráningu og skoðun hans:

  

kr.   

1.

Grunngjald skráðs köfunarbúnaðar

7.900

 

(Skráningarskyldur köfunarbúnaður er lunga, heilgríma,

 
 

hjálmur og loftþjappa).

 

2.

Fyrir greiningu lofts (þrjú rör)

5.100

3.

Fyrir Dragerrör til loftgreiningar

1.800

10. gr.

Gjöld vegna próftöku til köfunarréttinda.

Vegna próftöku til köfunarréttinda greiðast eftirtalin gjöld:

 

kr.   

1.

Fyrir próf til A-réttinda

27.000

2.

Fyrir próf til B-réttinda

27.000

3.

Fyrir próf til C-réttinda (froskköfun)

13.500

4.

Fyrir önnur próf

8.800

5.

Fyrir endurtökupróf

8.800

Próftaki skal greiða kostnað vegna próftöku eða hluta hennar sem fram fer utan stofnunar­innar og lækka próftökugjöld skv. 1. mgr. til samræmis við þann kostnað.

11. gr.

Gjöld vegna atvinnukafaraskírteina.

Vegna atvinnuskírteina kafara greiðast eftirtalin gjöld:

 

kr.   

1.

Fyrir útgáfu atvinnukafaraskírteinis

8.800

2.

Fyrir endurnýjun atvinnukafaraskírteinis

4.400

VI. KAFLI

Gjöld skv. 7. gr. laga um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987.

12. gr.

Frestur.

Fyrir veittan frest til þess að gangast undir öryggisfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna eða öðrum viðurkenndum aðila skal greiða kr. 2.300.

VII. KAFLI

Gjöld skv. 2. mgr. 17. gr. og 3. mgr. 5. gr.
laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003.

13. gr.

Gjöld fyrir skírteini leiðsögumanns og hafnsögumanns.

Vegna skírteina leiðsögumanns og hafnsögumanns greiðast eftirtalin gjöld:

 

kr.   

1.

Leiðsögumannsskírteini

8.800

2.

Hafnsögumannsskírteini

8.800

3.

Endurnýjun leiðsögu- og hafnsögumannsskírteina

4.400

VIII. KAFLI

Gjöld skv. 1. mgr. 9. gr. laga um siglingavernd, nr. 50/2004.

14. gr.

  

kr.   

1.
2.
3.
4.
5.

Staðfesting áhættumats
Staðfesting verndaráætlunar
Staðfesting á skipan verndarfulltrúa
Námskeið fyrir verndarfulltrúa
Námskeið í hafnavernd 1

26.900
37.600
10.800
53.800
16.100

Fyrir úttektir og árlegt eftirlit Siglingastofnunar vegna skipa- og hafnaverndar skal viðkomandi útgerðarmaður skips og höfn greiða samkvæmt útseldum taxta starfsmanns Siglingastofnunar. Jafnframt skal greiða fargjöld starfsmanns Siglingastofnunar, dag­peninga samkvæmt kjarasamningum starfsmanna ríkisins og útselda vinnu á ferða­tíma.

IX. KAFLI

Gjöld skv. lögum um Siglingastofnun Íslands,
nr. 6/1996, með síðari breytingum.

15. gr.

Eftirtalin gjöld skulu innheimt af starfsleyfum, atvinnuskírteinum og undanþágum. Þau skulu ekki gefin út nema greidd hafi verið gjöld skv. þessari grein:

1.













2.

3.


4.

Starfsleyfi
Skoðunarstofur skipa og búnaðar (A-faggilding)
- árlegt eftirlitsgjald
Skoðunarstofur skipa og búnaðar (B-faggilding)
- árlegt eftirlitsgjald
Önnur starfsleyfi
Eftirlit með þjónustustöðvum gúmmíbjörgunarbáta - allt að 500 bátar
- gjald fyrir hverja 200 báta þar fram yfir
Farþegaleyfi skipa (haffærisskírteini innifalið)*
Farþegaleyfi skipa (haffærisskírteini ekki innifalið)*
Viðurkenningarskírteini skipsbúnaðar*
- endurnýjun

Atvinnuskírteini

Undanþága til starfa á fiskiskipum og öðrum skipum til allt að 6 mánaða

Afgreiðslugjald vegna mönnunarnefndar skipa
- Erindi um fjölgun eða fækkun í áhöfn
- Mat á starfstíma við vélstjórn

kr.   
214.900
53.800
21.500
10.800
10.800

91.500
18.300
10.800
8.700
13.500
6.400

8.800

5.400


8.800
5.400

* Fyrir skoðanir á skipi og búnaði þess og annan undirbúning sem Siglingastofnun framkvæmir í tengslum við útgáfu starfsleyfa greiðist skv. þjónustugjaldskrá Siglinga­stofnunar Íslands.

X. KAFLI

Önnur gjöld o.fl.

16. gr.

Önnur þjónusta.

Fyrir aðra þjónustu Siglingastofnunar Íslands skal greitt skv. þjónustugjaldskrá stofn­unar­innar.

17. gr.

Þjónusta utan skrifstofutíma.

Gjöld samkvæmt reglugerð þessari miðast við að störf hinna fastráðnu starfsmanna Siglingastofnunar Íslands séu unnin á venjulegum skrifstofutíma.

Sé óskað eftir þjónustu utan þess tíma skal að auki greiða fyrir vinnu starfsmanns sam­kvæmt þjónustugjaldskrá stofnunarinnar.

18. gr.

Innheimta.

Gjöld skulu innheimt af Siglingastofnun Íslands eftir reikningum sem hún gefur út í sam­ræmi við gjaldskrá þessa og þjónustugjaldskrá stofnunarinnar.

19. gr.

Gildistaka o.fl.

Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt 28. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003, 20. gr. laga um skráningu skipa nr. 115/1985 með síðari breytingum, 9. gr. laga um skipa­mælingar nr. 146/2002, 14. gr. laga um áhafnir íslenskra farþegaskipa og flutninga­skipa nr. 76/2001, með síðari breytingum, 6. gr. laga um köfun nr. 31/1996, 7. gr. laga um lögskráningu sjómanna nr. 43/1987, með síðari breytingum, 3. mgr. 5. gr. og 2. mgr. 17. gr. laga um vaktstöð siglinga nr. 41/2003, lögum um Siglingastofnun Íslands nr. 6/1996, með síðari breytingum, og 1. mgr. 9. gr. laga um siglingavernd, nr. 50/2004, stað­festist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá Siglingastofnunar Íslands, nr. 1052/2004.

Samgönguráðuneytinu, 30. janúar 2006.

Sturla Böðvarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B-deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2006

  Til baka