Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 674/2011

Nr. 674/2011 16. maí 2011
AUGLÝSING
um gildistöku aðalnámskrár framhaldsskóla.

1. gr.

Með vísan til 21. og 23. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, með áorðnum breyt­ingum, staðfestir mennta- og menningarmálaráðherra hér með gildistöku aðalnámskrár framhaldsskóla, dags. 16. maí 2011, sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari. Aðalnámskráin kemur til framkvæmda í skólum frá og með skólaárinu 2011-2012 eftir því sem við verður komið og skal að fullu vera komin til framkvæmda eigi síðar en 1. ágúst 2015. Jafnframt fellur aðalnámskrá framhaldsskóla nr. 138 frá 28. janúar 2004 úr gildi.

2. gr.

Almennur hluti aðalnámskrár framhaldsskóla lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um alla nemendur, kennara og stjórnendur skóla og annað starfsfólk. Hún er jafnframt viðmið fyrir námsmat á framhaldsskólastigi, mat á skólum og skólastarfi, leiðarljós fyrir þá sem fást við námsefnisgerð og kennaramenntun, grundvöllur skóla­námskrárgerðar og innra mats skóla. Aðalnámskrá veitir einnig foreldrum upplýsingar svo að þeir geti fylgst með starfsháttum skólans og árangri skólastarfs.

3. gr.

Auglýsing þessi öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 16. maí 2011.

Katrín Jakobsdóttir.

Ásta Magnúsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 7. júlí 2011