Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 888/2007

Nr. 888/2007 30. ágúst 2007
REGLUR
um breytingu (33) á reglum nr. 458/2000, fyrir Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breyting verður á 114. gr.

Ný málsgrein um diplómanám í mannfræði bætist við á eftir 33. mgr. um diplómanám í bókasafns- og upplýsingafræði og hljóðar svo:

Diplómanám í mannfræði er sjálfstætt 15 eininga nám að loknu BA-prófi í mannfræði eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í meistaranám í mann­fræði.

2. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Ákvæði reglna þessara, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999, öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 30. ágúst 2007.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 3. október 2007