Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 214/2011

Nr. 214/2011 15. febrúar 2011
REGLUR
um meistara- og doktorsnám við Háskóla Íslands í umhverfis- og auðlindafræðum.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um meistara- og doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af öllum fræðasviðum og deildum háskólans.

Reglur um námið eru sérreglur gagnvart ákvæðum 69. gr. reglna nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands, og reglum einstakra fræðasviða og deilda um framhaldsnám. Sameigin­legar reglur Háskóla Íslands og reglur fræðasviða og deilda gilda þó eftir því sem við á ef þessar reglur hafa ekki að geyma ákvæði um einstök tilvik, þar með talið um tímalengd náms, einingafjölda, samsetningu náms, umsjónarkennara, leiðbeinendur og andmæl­endur. Fyrirvarar deilda í reglum og kennsluskrá um fjárveitingar, fáanlegt kennara­lið og slík atriði gilda gagnvart þeim nemendum sem skráðir eru í námið.

Miðstöð framhaldsnáms við Háskóla Íslands hefur umsjón með og fylgir eftir settum við­miðum og kröfum um gæði framhaldsnáms við Háskóla Íslands, sbr. nánar 66. gr. reglna nr. 569/2009. Standa ber skil á upplýsingum og gögnum sem Miðstöðin kallar eftir.

2. gr.

Markmið.

Meistara- og doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum er þverfaglegt nám sem miðar að því að veita fræðilega menntun á ýmsum sviðum er snerta umhverfismál og nýtingu auðlinda.

Með náminu skal koma til móts við þarfir samfélagsins um rannsóknir, kennslu, þjónustu og stefnumótun sem tengist umhverfismálum og sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda og efla þekkingu á þessum sviðum.

3. gr.

Um námið.

Námið er skipulagt og stundað í umboði og á ábyrgð fræðasviða og deilda sem eru bundin af reglum þessum, svo og af samkomulagi um námið, sbr. 2. mgr.

Forsetar fræðasviða hafa forgöngu um að gert sé samkomulag um framkvæmd námsins og þróun þess. Í því skal kveða á um fjármögnun þess og önnur atriði sem lúta að fjárhags­legum samskiptum.

Verkfræði- og náttúruvísindasvið annast umsýslu námsins, svo sem upplýsingagjöf til nemenda, tilkynningar, frágang kennsluskrár og slík atriði. Nánar skal kveðið á um í samkomulagi hvert hlutverk verkfræði- og náttúruvísindasviðs er.

Stjórn námsins fer yfir og afgreiðir umsóknir í umboði þeirra fræðasviða og deilda sem að náminu koma, sbr. 4. gr. Nemandinn er skráður í þverfaglega námsleið í umhverfis- og auðlindafræðum og velur þar kjörsvið sem segir til um þá deild sem hann mun braut­skrást frá að náminu loknu. Námsleiðin sem slík er í umsjá verkfræði- og náttúru­vísinda­sviðs og stjórnar námsins, en námskeið og verkefni á kjörsviðum námsleiðar­innar eru á ábyrgð viðkomandi deilda. Að auki gilda reglur þeirrar deildar þar sem rannsóknarverkefni (ritgerð) nemanda er unnið, enda skal nemandinn brautskráður frá þeirri deild.

4. gr.

Stjórn námsins og ráðgjafahópur.

Rektor skipar námsstjórn í umhverfis- og auðlindafræðum til þriggja ára í senn. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum, fimm samkvæmt tilnefningum stjórna fræðasviða, föstum umsjónarkennara námsleiðarinnar samkvæmt ákvörðun rektors, og einum fulltrúa til viðbótar sem rektor tilnefnir og er hann formaður námsstjórnar. Varamenn skulu tilnefndir fyrir hvern fulltrúa og skulu þeir ekki vera úr sömu deild og aðalmenn. Í námsstjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

Námsstjórn ber faglega ábyrgð á náminu í umboði fræðasviða og deilda. Námsstjórn fer með öll sameiginleg málefni námsins, skipuleggur það og hefur yfirumsjón með því.

Námsstjórnin tryggir gæði námsins m.a. með því að yfirfara og samþykkja umsóknir, samþykkja námsáætlanir og breytingar á þeim, skipa menn í meistara- og doktors­náms­nefndir og tilnefna prófdómara fyrir meistarapróf. Ennfremur hefur náms­stjórnin eftir atvikum forgöngu um gerð samninga við erlenda háskóla um samvinnu um meistara- og doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum. Slíkir samningar skulu stað­festir af rektor og viðkomandi forsetum fræðasviða.

Falli atkvæði jöfn við atkvæðagreiðslu í stjórn sker atkvæði formanns úr. Námsstjórn er heimilt að skipa ráðgjafahóp sér til ráðuneytis, samkvæmt tilnefningum frá deildum og samstarfsaðilum.

II. KAFLI

Ákvæði um meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum.

5. gr.

Umsóknarfrestur.

Umsóknarfrestur fyrir meistaranámið er til 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri, en erlendra umsækjenda til 1. febrúar. Heimili námsstjórn innritun á vormisseri skal sá umsóknarfrestur vera til 15. október.

6. gr.

Meðferð umsókna.

Umsóknum merktum „Umhverfis- og auðlindafræði“ skal skilað til nemendaskrár Háskóla Íslands á sérstöku rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á vef skólans. Upplýsingar um fylgigögn með umsókn er að finna á heimasíðu námsleiðarinnar.

Eftir skráningu gagna í nemendaskrá fjallar námsstjórn um umsóknir og ber að líta til gæða þeirra og inntökuskilyrða, sbr. 7. gr. Námsstjórn afgreiðir umsóknir og tilnefnir umsjónarkennara fyrir nemandann.

Að lokinni umfjöllun í námsstjórn tilkynnir hún umsækjanda um niðurstöðu sína. Afgreiðsla námsstjórnar skal skráð í rafrænt kerfi nemendaskrár. Afgreiðslu umsóknar skal að jafnaði vera lokið og henni svarað skriflega innan sex vikna frá lokum umsóknarfrests. Umsókn er synjað ef hún uppfyllir ekki gæðakröfur.

Nemandi sem námsstjórnin hefur samþykkt í meistaranám skal snúa sér til nem­enda­skrár og ganga frá skráningu og greiðslu skrásetningargjalds komandi háskóla­árs. Um skráningu og greiðslu skrásetningargjalds fer eftir sameiginlegum reglum Háskóla Íslands.

7. gr.

Inntökuskilyrði.

Til að innritast í meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum þarf umsækjandi að hafa lokið BS- eða BA-prófi eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt. Að jafnaði skal miða við fyrstu einkunn á BS- eða BA-prófi eða að nemandi hafi sýnt fram á námshæfni og/eða hæfni í sjálfstæðum rannsóknum. Námsstjórnin metur próf frá öðrum skólum en Háskóla Íslands.

Jafnframt skal umsækjandi leggja fram greinargerð ásamt umsögnum þriggja sér­fræðinga á sviði umhverfis- og auðlindafræða. Í greinargerð ber umsækjanda að færa fram rök fyrir umsókn sinni, markmiðum og væntingum til námsins og gera grein fyrir reynslu og fyrri störfum, einkum að rannsóknum. Námsstjórn metur umsóknir á grund­velli fyrra náms og þessara framlögðu gagna og samþykkir þær eða synjar.

8. gr.

Einingafjöldi og tímalengd náms.

Meistaranám í umhverfis- og auðlindafræðum er 120 einingar. Miðað skal við að lengd námsins sé tvö ár (fjögur misseri). Hámarksnámstími til meistaraprófs er sex misseri frá því stúdent var skrásettur í námið. Stjórn námsins er heimilt, að höfðu samráði við viðkomandi deild, að veita undanþágu frá þessum tímamörkum, þegar sérstaklega stendur á. Við brautskráningu skal stúdent sýna fram á að hann hafi verið skráður og greitt skráningargjald allan námstímann, eða samkvæmt nánari reglum sem Háskóli Íslands kann að setja.

9. gr.

Námsleiðir, framvinda og samsetning náms.

Námið skal fela í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og þátttöku í námskeiðum á framhaldsnámsstigi. Þungamiðja námsins er rannsóknar- eða þróunarverkefni innan umhverfis- og auðlindafræða og ritgerð sem byggist á því. Stærð verkefnisins er ákveðin í námsáætlun og skal vera 30 einingar eða 60 einingar. Aðrar einingar fást með þátttöku í námskeiðum, málstofum eða lesnámskeiðum.

Allir nemendur þurfa að hafa lokið tilteknum skyldunámskeiðum, þ.e. skyldukjarna, til að útskrifast með MS-/MA-gráðu í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Áhersla skal lögð á að nemendur fái innsýn í það hversu umhverfis- og auðlindafræði taka til margra ólíkra fræðigreina. Námskeið í skyldukjarna eru tilgreind í kennsluskrá. Hafi nemandi við innritun þegar lokið námi sem er sambærilegt tilteknu námskeiði í skyldukjarna getur námsstjórn ákveðið að valnámskeið sé tekið í þess stað.

Við lok annars misseris skal nemandi hafa fengið leiðbeinanda fyrir rannsóknarverkefni og veitir umsjónarkennari nemandans aðstoð við valið. Þá skal einnig liggja fyrir lýsing á rannsóknarverkefni og áætlun um framkvæmd þess. Námsstjórn samþykkir lýsinguna og áætlunina.

10. gr.

Námskeið í grunnnámi sem hluti af framhaldsnámi.

Námskeið í framhaldsnámi skulu að jafnaði vera sérstök framhaldsnámskeið við Háskóla Íslands eða aðrar viðurkenndar stofnanir. Nemendum í meistaranámi í umhverfis- og auðlindafræðum er heimilt að taka námskeið í grunnnámi sem hluta af framhaldsnámi, enda sé það nauðsynleg undirstaða hins þverfaglega náms. Miðað skal við að námskeið úr grunnnámi nemi ekki fleiri einingum en 18 af 120 ef lokaverkefni er 30 einingar og 12 ef lokaverkefni er 60 einingar. Miðað skal við að lágmarkseinkunn úr námskeiðum sé 6,0.

11. gr.

Umsjónarkennari lokaverkefnis og leiðbeinandi.

Sérhver meistaranemi skal frá lokum annars misseris hafa umsjónarkennara loka­verkefnis úr hópi fastra akademískra starfsmanna Háskóla Íslands sem hann ráðfærir sig við um rannsóknarverkefni og annað sem tengist náminu. Umsjónarkennari ásamt nemanda leggur fram áætlun um rannsóknaverkefni sem stjórn námsins samþykkir. Umsjónarkennari og leiðbeinandi eru að jafnaði sami einstaklingurinn. Nemanda er heimilt að hafa utanaðkomandi leiðbeinanda enda uppfylli hann kröfur þessara reglna. Ef leiðbeinandi er utan háskólans, þá hefur umsjónarkennari umsjón með verkefninu og er ábyrgur fyrir því að það sé í samræmi við kröfur viðkomandi deildar, en leiðbein­andi sér um að leiðbeina nemanda í rannsóknarverkefni.

12. gr.

Kröfur til umsjónarkennara lokaverkefnis og leiðbeinenda.

Umsjónarkennari skal vera akademískur starfsmaður í fullu starfi við Háskóla Íslands. og koma úr þeirri deild sem nemandi mun brautskrást frá að námi loknu. Ef leiðbeinandi kemur ekki úr þeim hópi þarf hann að hafa lokið a.m.k. meistaraprófi á viðkomandi fræðasviði. Gæta þarf þess að verkefni nemandans sé á sérsviði leiðbeinandans.

13. gr.

Meistaranámsnefndir.

Námsstjórnin skipar tvo sérfróða menn í meistaranámsnefnd samkvæmt tilnefningu þeirrar deildar þar sem nemandinn mun brautskrást frá að náminu loknu og er annar þeirra umsjónarkennari lokaverkefnis. Heimilt er að skipa þriðja manninn í nefndina, t.d. ef verkefnið snertir fleiri en eina deild. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með að framgangur námsins sé í samræmi við námsáætlun, svo og að tryggja fagleg gæði rannsóknavinnunnar í samræmi við reglur. Meistaranámsnefnd heldur reglulega fundi með nemandanum og nemandinn skilar árlegri skýrslu og námsáætlun á þar til gerðu eyðublaði til námsstjórnarinnar.

Námsstjórnin getur vikið frá ákvæði 1. mgr. ef sérstaklega stendur á.

14. gr.

Prófdómarar.

Forseti viðkomandi fræðasviðs skipar prófdómara að fenginni tilnefningu námsstjórnar sem hefur samráð við þá deild sem nemandinn brautskráist frá. Prófdómari og meistaranámsnefnd prófa meistaranema og leggja mat á lokaverkefnið. Prófdómari skal ekki vera tengdur rannsóknarverkefninu.

15. gr.

Námsmat og meistarapróf.

Þegar ritgerð er lögð fram skal jafnframt leggja fram til mats staðfest námsferilsyfirlit nemanda. Um einkunnir gilda ákvæði samkvæmt reglum fyrir Háskóla Íslands.

Um framkvæmd meistaraprófs og mat fer að reglum þeirrar deildar þar sem nemandi brautskráist. Prófdómari, ásamt meistaranámsnefnd, metur frammistöðu nemanda.

16. gr.

Skil og frágangur meistararitgerða.

Meistaraprófsritgerð skal leggja fram í samræmi við reglur þeirra deilda sem nemandi brautskráist frá. Við frágang lokaverkefna og meðferð heimilda skal nemandi fylgja reglum þeirrar deildar sem hann brautskráist frá. Koma skal skýrt fram að verkefnið sé unnið innan námsleiðar umhverfis- og auðlindafræða og við þá deild sem nemandinn brautskráist frá. Í formála skal geta samstarfsaðila og þeirra sjóða sem styrkt hafa verkefnið, ef það á við. Ritgerð skal vera á íslensku eða ensku en útdráttur á báðum tungumálum skal fylgja.

Nemandinn annast lögbundin skil á ritgerðinni til Landsbókasafns Íslands – Háskóla­bókasafns. Rafrænt eintak ber að vista í gagnasafni Skemmu sem safnið rekur.

17. gr.

Tengsl við aðra háskóla.

Hluta meistaranáms má taka við aðra háskóla eða viðurkenndar rannsókna- eða vísinda­stofnanir.

18. gr.

Lærdómstitill.

Meistarapróf samkvæmt þessum reglum veitir rétt til lærdómstitilsins Magister Artium (MA) eða Magister Scientiarum (MS) í umhverfis- og auðlindafræðum eftir því frá hvaða deild nemandi brautskráist.

III. KAFLI

Ákvæði um doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum.

19. gr.

Um doktorsnám í umhverfis- og auðlindafræðum.

Markmið doktorsnáms í umhverfis- og auðlindafræðum er að veita doktorsnemum vísinda­lega þjálfun og búa þá undir vísindastörf, t.a.m. háskólakennslu eða sérfræðings­störf hjá vísindalegum rannsóknastofnunum.

Liggja skal fyrir að námsstjórn telji nauðsynlega aðstöðu og sérþekkingu fyrir hendi í samræmi við gildandi viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands. Ennfremur liggi fyrir að fjármögnun námsins sé tryggð. Hafa ber samráð við Miðstöð framhaldsnáms um fagleg skilyrði, framkvæmd námsins og önnur atriði, sbr. 66. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Doktorsnámið fer fram á faglegri ábyrgð doktorsnámsnefndar í umhverfis- og auðlinda­fræðum í samvinnu við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi deildar sem brautskráir doktors­nemann að námi loknu. Doktorsnemi skal ljúka tilteknum námskeiðum í umhverfis- og auðlinda­fræðum samkvæmt ákvörðun doktorsnefndar í umhverfis- og auðlindafræðum hverju sinni.

Reglur hlutaðeigandi deildar um doktorsnám gilda að því marki sem ekki er kveðið á um einstök tilvik í reglum þessum.

20. gr.

Umsóknarfrestur.

Umsóknarfrestur um doktorsnámið er til 15. apríl, en erlendra umsækjenda til 1. febrúar. Heimili námsstjórn innritun á vormisseri skal sá umsóknarfrestur vera til 15. október. Heimilt er að taka við umsóknum um doktorsnám á öðrum tímum ef sérstaklega stendur á.

21. gr.

Inntökuskilyrði.

Stúdent sem lokið hefur MS- eða MA-prófi í umhverfis- og auðlindafræðum með fyrstu einkunn frá Háskóla Íslands eða samsvarandi prófi frá öðrum háskóla getur sótt um aðgang að doktorsnámi í umhverfis- og auðlindafræði. Ef undirbúningur doktorsnemans er ekki jafngildur þeim undirbúningi sem meistarapróf á sérsviðinu á að tryggja, skal gera kröfur um frekara nám eftir því sem ástæða þykir til. Því skal doktorsnemi að jafnaði ljúka með því að sækja námskeið á viðkomandi sérsviði. Doktorsnefnd í umhverfis- og auðlindafræðum, að höfðu samráði við doktorsnefnd hlutaðeigandi deildar, metur hvenær doktorsefni hefur uppfyllt þessar forkröfur og leggur mat sitt fyrir námsstjórn til samþykktar. Ef stúdent hyggst hefja doktorsnám strax að loknu meistaraprófi getur hann sótt um það áður en hann lýkur prófi, ef fyrir liggur staðfesting viðkomandi háskóladeildar um að hann muni væntanlega ljúka náminu með fullnægjandi árangri áður en doktorsnám hefst. Doktorsnám getur enginn hafið fyrr en inntöku­skilyrðum hefur verið fullnægt til hlítar.

22. gr.

Meðferð umsókna.

Námsstjórn fjallar um umsóknir um doktorsnám í samráði við hlutaðeigandi fræðasvið eða deild. Telji námsstjórn forsendur til þess að stunda námið hefur stjórnin forgöngu um gerð einstaklingsbundins samnings um framkvæmd námsins með aðild hlutaðeigandi háskóladeilda og eftir atvikum erlendra háskóla. Í þeim samningi skal kveðið á um inntak og tilhögun námsins, framkvæmd rannsóknarverkefnis og fjármögnun. Ennfremur skal þar fjallað um skipan leiðbeinenda og önnur atriði skv. 66. og 69. gr. reglna nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands.

23. gr.

Doktorsnefnd.

Námsstjórnin skipar þrjá til fimm sérfróða einstaklinga í doktorsnefnd umhverfis- og auðlindafræða í samráði við þá deild sem brautskráir nemandann að námi loknu og skal a.m.k. einn þeirra starfa utan viðkomandi deildar. Hlutverk nefndarinnar er hliðstætt hlutverki meistaranámsnefndar. Hún kveður doktorsefni á sinn fund eftir því sem þurfa þykir meðan á náminu stendur og prófar doktorsnemann í almennri fræðilegri þekkingu og rannsóknaraðferðum á viðkomandi sviði. Slíkt próf skal fara fram um miðbik námsins. Áður en til doktorsvarnar getur komið skilar doktorsnefndin í samvinnu við doktors­náms­nefnd hlutaðeigandi deildar rökstuddu áliti til deildar um það hvort veita skuli doktors­efni kost á að leggja ritgerð fram til doktorsvarnar.

24. gr.

Skil og frágangur doktorsritgerða.

Reglur um doktorsnám einstakra deilda kveða á um skilafrest lokaverkefnis og um fjölda eintaka lokaverkefnis, kostnað vegna þeirra og skil til Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Koma skal skýrt fram, að verkefnið sé unnið við Háskóla Íslands, leiðbeinendur, fræðasvið, deild og rannsóknastofnun, ef við á. Í formála skal geta samstarfsaðila og þeirra sjóða sem styrkt hafa verkefnið, ef það á við. Ritgerð má vera á erlendu máli og háskóladeild getur veitt manni leyfi til að tala erlent mál við doktorspróf. Hverri doktorsritgerð skal fylgja útdráttur á íslensku og ensku.

IV. KAFLI

Önnur ákvæði.

25. gr.

Gildistaka o.fl.

Þessar reglur eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af viðkomandi háskóladeildum, fræðasviðum og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglur um meist­ara­nám við Háskóla Íslands í umhverfis- og auðlindafræði nr. 296/2005.

Auk birtingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 1. mgr. 28. gr. laga nr. 85/2008, skal birta reglurnar í kafla þverfaglegs náms í kennsluskrá og á heimasíðu umsjónar­deildar.

Háskóla Íslands, 15. febrúar 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 7. mars 2011