1. gr. Félagið heitir Veiðifélag Laxdæla. Kennitala þess er 490775-0139. Heimili þess er að Þrándargili, 371 Dalabyggð. Varnarþing þess er þingstaður sveitarfélagsins. 2. gr. Markmið félagsins er: Ræktun Laxár með seiðasleppingum og öðrum þeim umbótum sem henta á hverjum tíma, t.d. gerð fiskvega, fjölgun veiðifljóta, vatnsmiðlun, vegalagningu að veiðistöðum o.fl. Að gera leigusamning fyrir Laxá eða annast rekstur hennar. 3. gr. Félagið hefur umráð yfir rétti til lax- og silungsveiða á göngufiski á vatnasvæði Laxár. Félagssvæðið eru eftirtaldar jarðir: Fjósar, Hrappsstaðir, Hjarðarholt, Spágilsstaðir, Goddastaðir, Lambastaðir, Gillastaðir I-II, Sámsstaðir I, II, III, Hamrar, Svalhöfði, Sólheimar I-II, Pálssel, Dönustaðir og Lambeyrar, Gröf, Svarfhóll og Engihlíð, Þrándargil, Leiðólfsstaðir, Hornsstaðir, Höskuldsstaðir, Sauðhús, Saurar, Ás. Alls 28 jarðir. 4. gr. Stjórn félagsins skipa fimm menn, formaður, varaformaður og þrír meðstjórnendur. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til þriggja ára í senn, fyrst gengur einn úr, eftir hlutkesti, síðan tveir og tveir, síðan helst sama röð. Stjórnin skiptir með sér verkum árlega að loknum aðalfundi. Enginn atkvæðisbær félagsmaður getur skorast undan kosningu, nema lögmæt forföll hamli eða hann hafi verið í stjórn félagsins í þrjú ár samfleytt. Að jafn löngum tíma liðnum er hann skyldur að taka við kosningu. Einn varamaður skal kosinn árlega. Kjósa skal tvo skoðunarmenn og einn til vara ár hvert. 5. gr. Stjórnin hefur á hendi umsjón með öllum framkvæmdum félagsins milli aðalfunda, hún ræður það starfsfólk, sem reksturinn þarfnast og gerir við það samninga, hún hefur eftirlit með því að samþykktum félagsins sé hlítt. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur yfirumsjón með störfum þess og fjárreiðum öllum, hann boðar til funda og stjórnar þeim. Afl atkvæða ræður úrslitum á stjórnarfundum. 6. gr. Stjórnarmenn skulu víkja sæti við meðferð mála félagsins sem snerta hagsmuni þeirra eða venslamanna, sérstaklega umfram aðra félagsmenn. Þeir skulu haga störfum sínum þannig að jafnræðis sé gætt meðal félagsmanna. Stjórn félagsins skal gæta andmælaréttar félagsmanns við meðferð mála sem snertir hagsmuni hans umfram aðra félagsmenn. Við ákvarðanatöku mála skal stjórn gæta þess að nægar upplýsingar liggi frammi. Rísi ágreiningur um lögmæti ákvörðunar félagsstjórnar eða fundar í félaginu getur félagsmaður kært ákvörðunina til Landbúnaðarstofnunar innan þriggja mánaða frá því að ákvörðun var tekin. 7. gr. Fundi í félaginu skal boða skriflega með dagskrá eigi síðar en 10 dögum fyrir fundardag. Skylt er að boða fundi í félaginu með ábyrgðarbréfi ef breyta á samþykktum félagsins. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum, þó verður breyting á samþykktum eða arðskrá að hljóta samþykki 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna. Nú verður breyting á samþykkt eða arðskrá ekki afgreidd vegna ófullnægjandi fundarsóknar, og skal þá boða til annars fundar. Á þeim fundi ræður afl atkvæða. Ef lagðar eru fyrir fund tillögur um framkvæmdir sem hafa í för með sér fjárútlát er nema a.m.k. 25% af tekjum félagsins á starfsárinu, getur hver félagsmaður krafist þess að ákvörðun ráðist með greiðslu atkvæða er hafi vægi í samræmi við arðskrá, sbr. 7. mgr. 40. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði og gildir þá ein eining í arðskrá hjá félagsmanni sem hefur atkvæðisrétt sem eitt atkvæði, sbr. 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Greiða má atkvæði skriflega enda sé þess getið í fundarbók. Á félagsfundi skal leggja fram skrá yfir atkvæðisbæra félagsmenn. Umboð sem lögð eru fram á fundi skulu skráð í fundargerðabók. 8. gr. Aðalfundur skal haldinn fyrir 1. júní ár hvert. Aðalfundur er lögmætur ef hann er boðaður skriflega með dagskrá og þegar 1/3 hluti félagsmanna og meirihluti stjórnar er mættur. Á aðalfundi skýrir stjórnin frá störfum félagsins á liðnu starfsári, leggur fram yfirfarna reikninga og ályktar fundurinn um þá, einnig skal stjórn leggja fram áætlun um framkvæmdir næsta árs. Fjárhagsáætlun næsta árs skal í megindráttum vera í samræmi við framlagðan ársreikning. Aðalfundur kýs stjórn og skoðunarmenn, hann kveður á um þóknun fyrir störf stjórnar. Aukafund heldur stjórnin þegar henni þykir ástæða til, eða ¼ hluti félagsmanna æskir þess og tilgreinir fundarefni. Aukafundi skal boða símleiðis með dagskrá. 9. gr. Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórninni ber að færa reikningana í gerðabók sem henni er skylt að halda svo og samþykktir félagsins, félagaskrá, arðskrá og fundargerðir. 10. gr. Arði af sameiginlegri veiði og öðrum tekjum, svo og öllum gjöldum er af starfsemi félagsins leiðir skal skipt niður á félagsmenn skv. arð- og gjaldskrá sem lögmætur fundur samþykkir og undirrituð er samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði á hverjum tíma. 11. gr. Samþykkt þessari verður ekki breytt nema 2/3 hlutar félagsmanna samþykki. 12. gr. Brot á samþykkt þessari og viðurlög varða sektum samkvæmt VIII. kafla laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði. 13. gr. Samþykkt þessi staðfestist samkvæmt 39. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt falla úr gildi eldri samþykktir veiðifélagsins. Landbúnaðarstofnun, 1. nóvember 2007. Viktor S. Pálsson, forstöðumaður stjórnsýslusviðs.
|