Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 632/2009

Nr. 632/2009 6. júlí 2009
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1218/2008 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.

1. gr.

Í stað „400.000 kr.“ í 5. mgr. 3. gr. kemur: 350.000 kr.

2. gr.

Í stað tölunnar „18“ í 1. og 2. málsl. 5. mgr. 14. gr. kemur: 36.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 7. og 12. mgr. 13. gr. og 35. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og á við um foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. júlí 2009 eða síðar.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 6. júlí 2009.

Árni Páll Árnason.

Ágúst Þór Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2009