Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 771/2009

Nr. 771/2009 15. september 2009
AUGLÝSING
um deiliskipulag tengivegar Skeiðholt - Leirvogstunga, Mosfellsbæ.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga þann 18. febrúar 2009 samþykkt deiliskipulag tengivegar frá gatnamótum við Þverholt að Köldukvísl við Leirvogstungu. Deiliskipulagið kveður á um breytingar á legu og útfærslu Skeiðholts, væntanlega legu Tunguvegar og útfærslur gatnamóta. Það fjallar einnig um göngu- og reiðstíga, brýr yfir Varmá og Köldukvísl og undirgöng fyrir gangandi og ríðandi umferð.
Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 15. september 2009,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 17. september 2009