Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 213/2011

Nr. 213/2011 15. febrúar 2011
REGLUR
um meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gildissvið.

Reglur þessar gilda um meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands. Námið er þverfaglegt og skipulagt sameiginlega af Miðstöð í lýðheilsuvísindum, félagsvísindasviði og heilbrigðisvísindasviði og einstökum deildum þeirra og eftir atvikum deildum annarra fræðasviða sem aðild kunna að eiga að náminu. Reglur um námið eru sérreglur gagnvart ákvæðum 69. gr. reglna nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands, og reglum einstakra fræðasviða og deilda um framhaldsnám. Sameiginlegar reglur Háskóla Íslands og reglur fræðasviða og deilda gilda þó eftir því sem við á ef þessar reglur hafa ekki að geyma ákvæði um einstök tilvik, þar með talið um tímalengd náms, einingafjölda, samsetningu náms, umsjónarkennara, leiðbeinendur og andmælendur. Fyrirvarar deilda í reglum og kennsluskrá um fjárveitingar, fáanlegt kennaralið og slík atriði gilda gagnvart þeim nemendum sem skráðir eru í námið.

Miðstöð framhaldsnáms við Háskóla Íslands hefur umsjón með og fylgir eftir settum viðmiðum og kröfum um gæði framhaldsnáms við Háskóla Íslands, sbr. nánar 66. gr. reglna nr. 569/2009. Standa ber skil á upplýsingum og gögnum sem Miðstöðin kallar eftir.

2. gr.

Markmið.

Meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum er þverfaglegt nám sem miðar að því að veita fræðilega menntun á ýmsum sviðum er snerta lýðheilsu í víðum skilningi. Með náminu skal koma til móts við þarfir samfélagsins um rannsóknir, kennslu, þróun, þjónustu og stefnumótun í tengslum við lýðheilsu og efla þekkingu á því sviði.

3. gr.

Um námið.

Námið er skipulagt af Miðstöð í lýðheilsuvísindum í læknadeild í samvinnu við og í umboði þeirra fræðasviða og háskóladeilda sem aðild eiga að því. Aðild að náminu felur í sér að viðkomandi fræðasvið og deild eru bundnar af reglum þessum, svo og af samkomulagi um námið, sbr. 2. mgr.

Forsetar félagsvísindasviðs og heilbrigðisvísindasviðs hafa forgöngu um að gert sé almennt samkomulag um framkvæmd námsins og þróun þess. Í því skal kveða á um hvaða deildir eigi aðild að því, fjármögnun þess og önnur atriði sem lúta að fjárhagslegum samskiptum.

Miðstöð í lýðheilsuvísindum við læknadeild á heilbrigðisvísindasviði annast umsýslu námsins, s.s. upplýsingagjöf til nemenda, tilkynningar, frágang kennsluskrár og slík atriði. Nánar skal kveðið á um í samkomulagi deilda hvert hlutverk læknadeildar og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum er.

Stjórn námsins fer yfir og afgreiðir umsóknir í umboði þeirra fræðasviða og deilda sem að náminu koma, sbr. 4. gr. Við inntöku í námið er nemandi skráður í þverfaglega námsleið í lýðheilsuvísindum og velur þar kjörsvið sem segir til um þá deild þar sem rannsóknarverkefni (ritgerð) nemanda er unnið eða meginhluti náms hans fer fram og hann mun brautskrást frá að námi loknu.

4. gr.

Stjórn námsins og ráðgjafahópur.

Rektor skipar námsstjórn í lýðheilsuvísindum til þriggja ára í senn. Stjórnin er skipuð fimm fulltrúum: einum samkvæmt tilnefningu félagsvísindasviðs, tveimur samkvæmt tilnefningu heilbrigðisvísindasviðs og skal annar þeirra vera frá læknadeild, föstum umsjónarkennara námsleiðarinnar samkvæmt ákvörðun rektors og fulltrúa sem rektor tilnefnir og er hann formaður námsstjórnar. Varamenn skulu tilnefndir fyrir hvern fulltrúa. Í námsstjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Námsstjórnin ber faglega ábyrgð á náminu í umboði fræðasviða og deilda. Námsstjórn fer með öll sameiginleg málefni námsins, skipuleggur það og hefur yfirumsjón með því. Námsstjórn tryggir gæði námsins m.a. með því að yfirfara og samþykkja umsóknir, samþykkja námsáætlanir og breytingar á þeim, skipa menn í meistara- og doktorsnámsnefndir. Námsstjórn sendir samþykktar umsóknir, ásamt rannsóknaráætlun, til rannsóknarnámsnefnda deilda eða eftir því sem kveðið er á um í reglum viðkomandi deildar. Prófdómarar eru tilnefndir af rannsóknarnámsnefndum eða samkvæmt reglum heimadeildar leiðbeinanda. Námsstjórn hefur forgöngu um gerð samninga milli háskóladeilda og við erlenda háskóla um doktorsnám.

Falli atkvæði jöfn við atkvæðagreiðslu í stjórn sker atkvæði formanns úr. Námsstjórn er heimilt að skipa ráðgjafahóp sér til ráðuneytis, samkvæmt tilnefningum frá deildum og samstarfsaðilum.

II. KAFLI

Ákvæði um meistaranám í lýðheilsuvísindum.

5. gr.

Umsóknarfrestur.

Umsóknarfrestur fyrir meistaranámið er til 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri, en erlendra umsækjenda til 1. febrúar. Heimili námsstjórn innritun á vormisseri skal sá umsóknarfrestur vera til 15. október. Stjórn námsins getur veitt undanþágu frá þessum tímasetningum ef sérstaklega stendur á.

6. gr.

Meðferð umsókna.

Umsóknum merktum „Lýðheilsuvísindi“ skal skilað til nemendaskrár Háskóla Íslands á sérstöku rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á vef skólans. Eftir skráningu gagna í nemendaskrá sér Miðstöð lýðheilsuvísinda um úrvinnslu þeirra. Námsstjórn fjallar um og afgreiðir umsóknir og ber að líta til gæða þeirra og inntökuskilyrða. Umsókn skal fylgja námsáætlun, þar með talið áform um séráherslur í náminu og fyrirhuguð valnámskeið. Ferli umsókna um meistaranám í lýðheilsu er eftirfarandi:

  1. Stúdent sækir um inngöngu í meistaranám á rafrænu eyðublaði á vef háskólans. Skrifstofa Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum vinnur úr umsóknum og sendir til námsstjórnar.
  2. Greint skal frá því hvort umsækjandi hyggst sækja um fjárstuðning í tengslum við námið (t.d. til Rannsóknanámssjóðs, fyrirtækja eða stofnana). Liggi fyrir drög að umsókn til sjóða skulu þau fylgja umsókn um meistaranám. Sé rannsóknar­verkefni unnið utan deilda Háskóla Íslands skal fylgja með yfirlýsing fyrirtækis eða stofnunar sem verkefnið er unnið hjá. Þessi yfirlýsing skal staðfesta þátttöku fyrirtækis eða stofnunarinnar í verkefninu.
  3. Afgreiðslu umsóknar skal að jafnaði vera lokið og henni svarað skriflega innan sex vikna frá því að umsóknarfrestur rennur út. Umsókn er synjað ef hún uppfyllir ekki gæðakröfur.
  4. Nemandi sem námsstjórnin hefur samþykkt í meistaranám skal snúa sér til nemendaskrár og ganga frá skráningu og greiðslu skrásetningargjalds komandi háskólaárs. Um skráningu og greiðslu skrásetningargjalds fer eftir sameiginlegum reglum Háskóla Íslands.

7. gr.

Inntökuskilyrði.

Til að innritast í meistaranám í lýðheilsuvísindum þarf að hafa lokið B.S.- eða B.A.-prófi eða öðru háskólanámi sem metið er jafngilt fyrsta háskólaprófi. Námsstjórnin metur próf frá öðrum skólum en Háskóla Íslands. Námsstjórnin getur sett sér sérstök viðmið um inntöku inn í námið, sem falla að reglum Háskóla Íslands.

8. gr.

Einingafjöldi og tímalengd náms.

Meistaranám í lýðheilsuvísindum er 120 einingar (ECTS). Miðað skal við að lengd námsins sé tvö ár (fjögur misseri). Hámarksnámstími til meistaraprófs er sex misseri frá því stúdent var skrásettur í námið. Stjórn námsins er heimilt, að höfðu samráði við viðkomandi deild, að veita undanþágu frá þessum tímamörkum, þegar sérstaklega stendur á. Við brautskráningu skal stúdent sýna fram á að hann hafi verið skráður og greitt skráningargjald allan námstímann, eða samkvæmt nánari reglum sem háskólinn kann að setja.

9. gr.

Námsleiðir, framvinda og samsetning náms.

Námið skal fela í sér þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og þátttöku í námskeiðum á framhaldsnámsstigi. Þungamiðja námsins er rannsóknar- eða þróunarverkefni innan lýðheilsuvísinda og ritgerð sem byggist á því. Stærð verkefnisins er ákveðin í náms­áætlun og skal vera minnst 30 einingar en mest 60 einingar. Aðrar einingar fást með þátttöku í námskeiðum, málstofum eða lesnámskeiðum.

Allir nemendur þurfa að hafa lokið tilteknum skyldunámskeiðum, þ.e. skyldukjarna, til að útskrifast með MPH-gráðu í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands Námskeið í skyldu­kjarna eru tilgreind í kennsluskrá. Námsstjórn mótar reglur um það hvort og þá hvernig fyrra nám getur komið í stað skyldunámskeiða. Við lok fyrsta misseris skal nemandi hafa valið sér leiðbeinanda fyrir rannsóknar­verkefni og veitir kennari Mið­stöðvar í lýðheilsu­vísindum aðstoð við valið. Þá skal liggja fyrir lýsing á rannsóknar­verkefni og áætlun um framkvæmd þess undir lok 2. misseris. Námsstjórn samþykkir lýsinguna og áætlunina.

10. gr.

Námskeið í grunnnámi sem hluti af framhaldsnámi.

Námskeið í framhaldsnámi skulu að jafnaði vera sérstök framhaldsnámskeið við Háskóla Íslands eða aðrar viðurkenndar stofnanir. Nemendum í meistaranámi í lýðheilsuvísindum er heimilt að taka námskeið í grunnnámi sem hluta af framhaldsnámi, enda sé það nauðsynleg undirstaða hins þverfaglega náms að mati námsstjórnar. Miðað skal við að námskeið úr grunnnámi nemi ekki fleiri einingum en 12 af 120. Miðað skal við að lágmarkseinkunn úr námskeiðum í grunnnámi sé 6,0.

11. gr.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi.

Sérhver meistaranemi skal frá upphafi annars misseris hafa umsjónarkennara úr hópi fastra akademískra starfsmanna Háskóla Íslands, eða með viðeigandi hæfnismat frá háskólanum í viðkomandi grein, sem hann ráðfærir sig við um skipulag námsins, val námskeiða og leiðbeinanda með rannsóknarverkefni, ef við á, og annað sem tengist náminu. Umsjónarkennari ásamt nemanda leggur fram áætlun um rannsóknarverkefni sem stjórn námsins samþykkir. Umsjónarkennari og leiðbeinandi eru að jafnaði sami maðurinn. Nemanda er heimilt að hafa utanaðkomandi leiðbeinanda enda uppfylli hann kröfur þessara reglna. Ef umsjónarkennari og leiðbeinandi eru ekki sami maðurinn, þá hefur umsjónarkennari umsjón með náminu og er ábyrgur fyrir því að það sé í samræmi við kröfur viðkomandi deildar, en leiðbeinandi sér um að leiðbeina nemanda í rannsóknarverkefni.

12. gr.

Kröfur til umsjónarkennara og leiðbeinanda.

Umsjónarkennari skal vera akademískur starfsmaður í fullu starfi við Háskóla Íslands og að öðru jöfnu koma úr þeirri deild þar sem meginhluti náms fer fram og nemandi mun brautskrást frá að námi loknu. Ef leiðbeinandi kemur ekki úr þeim hópi skal hann að jafnaði hafa lokið doktorsprófi á viðkomandi fræðasviði. Gæta þarf þess að verkefni nemandans sé á sérsviði leiðbeinandans.

13. gr.

Meistaranámsnefndir.

Námsstjórnin skipar þrjá sérfróða menn í meistaranámsnefnd, þar á meðal eru leið­beinandi og umsjónarkennari. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með að fram­gangur námsins sé í samræmi við námsáætlun, svo og að tryggja fagleg gæði rannsóknar­vinnunnar í samræmi við reglur. Meistaranámsnefnd fundar a.m.k. tvisvar með nemandanum á námstímanum og leiðbeinandi skilar framvinduskýrslu til skrifstofu Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við lok 3. og 4. misseris. Námsstjórnin getur vikið frá ákvæði þessarar greinar ef sérstaklega stendur á.

14. gr.

Prófdómarar.

Prófdómari er tilnefndur af rannsóknarnámsnefnd eða eftir reglum viðkomandi útskriftar­deildar. Prófdómari og meistaranámsnefnd prófa meistaranema og leggja mat á loka­verkefnið. Prófdómari skal ekki vera tengdur rannsóknarverkefninu.

15. gr.

Námsmat og meistarapróf.

Þegar ritgerð er lögð fram skal jafnframt leggja fram til mats staðfest námsferilsyfirlit nemanda. Um einkunnir gilda ákvæði samkvæmt reglum fyrir Háskóla Íslands. Í meistaraprófi fyrir 60 eininga lokaverkefni flytur nemandi fyrirlestur um lokaverkefnið en að honum loknum er nemandinn prófaður. Prófdómari, ásamt meistaranámsnefnd, meta frammistöðu nemanda og úrskurða hvort nemandi hafi staðist prófið.

16. gr.

Skil og frágangur meistararitgerða.

Meistaraprófsritgerð skal leggja fram fyrir meistaraprófsnefnd og prófdómara minnst þremur vikum fyrir áætlaðan prófdag. Að auki skal skila fjórum eintökum til skrifstofu Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum. Af þeim eintökum er eitt sent Landsbókasafni - Háskólabókasafni og eitt til heimadeildar leiðbeinanda sé hún önnur en læknadeild. Nemendur bera ábyrgð á að skila rafrænu eintaki í gagnasafn Skemmu sem safnið rekur. Við frágang lokaverkefna og meðferð heimilda skal nemandi fylgja reglum þeirrar deildar sem hann brautskráist frá, þ.e. heimadeildar leiðbeinanda. Koma skal skýrt fram að verkefnið sé unnið í lýðheilsuvísindum og við þá deild sem nemandinn brautskráist frá. Í formála skal geta samstarfsaðila og þeirra sjóða sem styrkt hafa verkefnið, ef það á við. Ritgerð skal vera á íslensku eða ensku, en útdráttur á báðum tungumálum skal fylgja. Æskilegt er að ritgerð 60 eininga verkefnis hafi verið send til birtingar í viðurkenndu vísindatímariti.

17. gr.

Tengsl við aðra háskóla.

Hluta meistaranáms má taka við aðra háskóla eða viðurkenndar rannsókna- eða vísinda­stofnanir.

18. gr.

Lærdómstitill.

Meistarapróf samkvæmt þessum reglum veitir rétt til lærdómstitilsins Master of Public Health (MPH).

III. KAFLI

Ákvæði um doktorsnám í lýðheilsuvísindum.

19. gr.

Um doktorsnám í lýðheilsuvísindum.

Markmið doktorsnáms í lýðheilsuvísindum er að veita doktorsnemum vísindalega þjálfun og búa þá undir vísindastörf, t.a.m. háskólakennslu eða sérfræðingsstörf hjá vísinda­legum rannsóknastofnunum.

Doktorsnámið fer fram á faglegri ábyrgð námsstjórnar Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum og hlutaðeigandi deildar sem brautskráir doktorsnemann. Doktorsnemi skal ljúka tilteknum námskeiðum í lýðheilsuvísindum samkvæmt ákvörðun námsstjórnar hverju sinni. Liggja skal fyrir að námsstjórn telji nauðsynlega aðstöðu og sérþekkingu fyrir hendi í samræmi við gildandi viðmið og kröfur um gæði doktorsnáms við Háskóla Íslands. Hafa ber samráð við Miðstöð framhaldsnáms um fagleg skilyrði, framkvæmd námsins og önnur atriði, sbr. 66. gr. reglna Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Námsstjórnin skipar þrjá til fimm sérfróða menn í doktorsnefnd fyrir doktorsnemann samkvæmt tilnefningu þeirrar deildar sem brautskráir nemandann að námi loknu og skal a.m.k. einn þeirra starfa utan viðkomandi deildar. Hlutverk nefndarinnar er hliðstætt hlutverki meistaranámsnefndar. Hún kveður doktorsefni á sinn fund eftir því sem þurfa þykir meðan á náminu stendur og prófar doktorsnemann í almennri fræðilegri þekkingu og rannsóknaraðferðum á viðkomandi sviði. Slíkt próf skal fara fram um miðbik námsins. Áður en til doktorsvarnar getur komið skilar doktorsnefnd doktorsnemans í samvinnu við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi deildar/fræðasviðs rökstuddu áliti til deildar um það hvort veita skuli doktorsefni kost á að leggja ritgerð fram til doktorsvarnar. Reglur hlutaðeigandi fræðasviðs/deildar um doktorsnám gilda að því marki sem ekki er kveðið á um einstök tilvik í reglum þessum.

20. gr.

Umsóknarfrestur.

Heimilt er að taka við umsóknum um doktorsnám allt árið um kring.

21. gr.

Inntökuskilyrði.

Stúdent sem lokið hefur MPH prófi í lýðheilsuvísindum með fyrstu einkunn frá Háskóla Íslands eða samsvarandi prófi frá öðrum háskóla getur sótt um aðgang að doktorsnámi í lýðheilsuvísindum. Ef undirbúningur doktorsnemans er ekki jafngildur þeim undirbúningi sem meistarapróf á sérsviðinu á að tryggja, skal gera kröfur um frekara nám eftir því sem ástæða þykir til. Því skal doktorsnemi að jafnaði ljúka með því að sækja námskeið á viðkomandi sérsviði. Námsstjórn í Miðstöð í lýðheilsuvísindum, að höfðu samráði við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi fræðasviðs/deildar, metur hvenær doktorsefni hefur uppfyllt þessar forkröfur og leggur mat sitt fyrir námsstjórn til samþykktar. Ef stúdent hyggst hefja doktorsnám strax að loknu meistaraprófi getur hann sótt um það áður en hann lýkur prófi, ef fyrir liggur staðfesting viðkomandi háskóladeildar um að hann muni væntanlega ljúka náminu með fullnægjandi árangri áður en doktorsnám hefst. Doktorsnám getur enginn hafið fyrr en inntökuskilyrðum hefur verið fullnægt til hlítar.

22. gr.

Meðferð umsókna.

Námsstjórn fjallar um umsóknir um doktorsnám í samráði við doktorsnámsnefnd hlutaðeigandi fræðasviðs/deildar. Telji námsstjórn forsendur til þess að stunda námið hefur stjórnin forgöngu um að gerð einstaklingsbundins samnings um framkvæmd námsins með aðild hlutaðeigandi háskóladeilda og eftir atvikum erlendra háskóla. Í þeim samningi skal kveðið á um inntak og tilhögun námsins, framkvæmd rannsóknarverkefnis og fjármögnun. Enn fremur skal þar fjallað um skipan leiðbeinenda og önnur atriði skv. 66. og 69. gr. reglna nr. 569/2009, fyrir Háskóla Íslands.

23. gr.

Skil og frágangur doktorsritgerða.

Reglur um doktorsnám einstakra deilda kveða á um skilafrest lokaverkefnis og um fjölda eintaka lokaverkefnis, kostnað vegna þeirra og skil til Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Koma skal skýrt fram, að verkefnið sé unnið við Háskóla Íslands, leiðbeinendur, fræðasvið, deild og rannsóknastofnun, ef við á. Í formála skal geta samstarfsaðila og þeirra sjóða sem styrkt hafa verkefnið, ef það á við. Ritgerð má vera á ensku og háskóladeild getur veitt manni leyfi til að tala ensku við doktorspróf. Hverri doktorsritgerð skal fylgja útdráttur á íslensku og ensku.

24. gr.

Lærdómstitill.

Doktorspróf samkvæmt þessum reglum veitir rétt til lærdómstitilsins Doctor of Philo­sophy, philosophiae doctor, (Ph.D), í lýðheilsuvísindum.

IV. KAFLI

Önnur ákvæði.

25. gr.

Gildistaka o.fl.

Þessar reglur eru settar af háskólaráði með heimild í 3. mgr. 18. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af viðkomandi háskóladeildum, fræðasviðum og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi reglur um meistara- og doktorsnám í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands, nr. 594/2006. Auk birtingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 1. mgr. 28. gr. laga nr. 85/2008, skal birta reglurnar í kafla þverfræðilegs náms í kennsluskrá og á heimasíðu umsjónardeildar.

Háskóla Íslands, 15. febrúar 2011.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 7. mars 2011