Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira



Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1071/2006

Nr. 1071/2006 15. desember 2006

AUGLÝSING
um nýtt fasteignamat.

1. gr.

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 6/2001, um skráningu og mat fasteigna, hefur yfirfasteignamatsnefnd ákveðið framreiknistuðla fyrir skráð matsverð fasteigna á öllu landinu með hliðsjón af breytingu verðlags fasteigna við kaup og sölu frá síðasta viðmiðunartíma matsins til 31. desember nk. Nefndin hefur ákveðið framreikning á matsverði fasteigna þannig:

  1. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða, atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða, sumarhúsa og sumarhúsalóða, svo og matsverð bújarða ásamt íbúðarhúsum og útihúsum á bújörðum og matsverð hlunninda, sbr. þó stafliði b, c, d og e, hækki um 10% og verður framreikningsstuðull þeirra samkvæmt því 1,10.
  2. Matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði, Egilsstöðum og Fellabæ hækki um 20% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,20.
  3. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Garðabæ, Grindavík, Vogum, Borgarnesi, Stykkishólmi, Sauðárkróki, Hvammstanga, Skagaströnd, Dalvík, Húsavík, Reyðarfirði, Egilsstöðum, Fellabæ, Flúðum í Hrunamannahreppi og í þéttbýli í Snæfellsbæ, svo og matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða á Álftanesi, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ, Grindavík, Borgarnesi og Selfossi hækki um 15% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,15.
  4. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða í Grundarfirði og í Bolungarvík hækki um 5% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 1,05.
  5. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðarlóða á Bíldudal, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdal, Grímsey, Flatey á Skjálfanda, Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafirði, Vopnafirði, Bakkagerði, Breiðdalsvík, Djúpavogi, Hornafirði, og í Vestmannaeyjum, svo og matsverð atvinnuhúsa og atvinnuhúsalóða í þéttbýli á Vestfjörðum frá Gilsfirði að Hrútafjarðarbotni, í Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Grímsey og Grýtubakkahreppi, í þéttbýli á Norður- og Norð-Austurlandi frá Kinnarfjöllum að og með Mjóafirði og ennfremur í þéttbýli frá og með Breiðdalshreppi að og með Mýrdalshreppi og í Vestmannaeyjum verði óbreytt og framreikningsstuðull samkvæmt því 1,00.

Við framreikning ársins á ofangreindum grundvelli skal höfð hliðsjón af fyrningu samkvæmt reglum Fasteignamats ríkisins fyrir einstakar tegundir eigna.

Ofangreind breyting fasteignamats er miðuð við fasteignamatsverð samkvæmt fasteignaskrá þeirri er gildi tók 31. desember 2005 með síðari breytingum ákveðnum af Fasteignamati ríkisins og yfirfasteignamatsnefnd.

2. gr.

Á vegum Fasteignamats ríkisins hefur verið samin ný fasteignaskrá, þar sem matsverð einstakra fasteigna er skráð samkvæmt þeim framreiknistuðlum sem ákveðnir hafa verið samkvæmt framanskráðu. Hin nýja fasteignaskrá inniheldur einnig þær matsbreytingar sem Fasteignamat ríkisins eða yfirfasteignamatsnefnd hefur gert á einstökum fasteignum svo sem við endurskoðun á eldra mati og vegna úrskurða á kærum er kunna að hafa leitt til matsbreytinga.

3. gr.

Fjármálaráðherra hefur staðfest heildareintak hins nýja fasteignamats eins og það hefur verið ákveðið með ofangreindum hætti. Fasteignaskráin mun liggja frammi til sýnis á skrifstofu Fasteignamatsins, Borgartúni 21, Reykjavík, frá og með 31. desember nk. Frá sama tíma mun hið nýja matsverð einnig koma fram í uppflettingu hjá þeim aðilum sem eru í beinu tölvusambandi við stofnunina. Jafnframt verður eigendum fasteigna send sérstök tilkynning um breytingu á matsverði viðkomandi fasteigna.

4. gr.

Með vísan til laga nr. 6/2001 tilkynnir ráðuneytið hér með að nýtt matsverð fasteigna, sem ákveðið er með ofangreindum hætti og fram kemur í staðfestri skrá Fasteignamats ríkisins, tekur gildi 31. desember 2006.

Með auglýsingu þessari fellur úr gildi auglýsing nr. 1158 frá 21. desember 2005.

Fjármálaráðuneytinu, 15. desember 2006.

F. h. r.

Baldur Guðlaugsson.

Hafsteinn S. Hafsteinsson.


B-deild - Útgáfud.: 22. desember 2006

  Til baka