Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 262/2014

Nr. 262/2014 12. mars 2014
REGLUGERÐ
um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2014-2017.

1. gr.

Beingreiðslur og greiðslumark lögbýla.

Heildarfjárhæð beingreiðslna árið 2014 er 2.478 m.kr. Heildargreiðslumark sauðfjár á lögbýlum 1. janúar 2014 er 368.457 ærgildi. Beingreiðslur til lögbýla taka breytingum í samræmi við ákvæði IX. kafla laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum (búvörulög).

2. gr.

Handhafar beingreiðslna.

Handhafi beingreiðslna er ábúandi lögbýlis.

Matvælastofnun heldur skrá yfir rétthafa greiðslumarks lögbýla og handhafa bein­greiðslna samkvæmt því. Á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður hand­hafi. Þó er heimilt, þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila, er að ræða sem standa að búinu að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálf­stætt virðisaukaskattsuppgjör.

Réttur til beingreiðslna flyst milli aðila innan lögbýlis við ábúendaskipti og við breytingu skráningar ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða.

Handhafar beingreiðslna skulu láta Matvælastofnun í té upplýsingar um sérstakan reikn­ing í banka eða öðrum viðskiptastofnunum, sem greiðslur skulu lagðar inn á.

3. gr.

Aðilaskipti.

Aðilaskipti að greiðslumarki skulu taka gildi 1. janúar ár hvert og beingreiðslur greiðast nýjum handhafa frá sama tíma. Tilkynna skal Matvælastofnun aðilaskipti að greiðslu­marki á eyðublöðum sem Matvælastofnun lætur í té fyrir 15. janúar ár hvert vegna beingreiðslna ársins.

Með tilkynningu um aðilaskipti að greiðslumarki sem bundið er við lögbýli sbr. 1. og 2. mgr. 38. gr. búvörulaga skal fylgja staðfesting um eignarhald að lögbýli og samþykki ábúanda, sameigenda og veðhafa í lögbýlinu.

Með tilkynningu um aðilaskipti að sérskráðu greiðslumarki í eigu ábúanda eða leiguliða við lok ábúðar eða leigu, sbr. 4. mgr. 38. gr. búvörulaga skal fylgja staðfesting á eignar­haldi lögbýlis og því að eiganda jarðar hafi verið boðin forkaupsréttur.

Matvælastofnun skal staðfesta aðilaskipti að greiðslumarki með áritun á tilkynningu og öðlast þau þá gildi frá og með 1. janúar, sbr. 2. mgr. 38. gr. búvörulaga. Matvælastofnun skal tilkynna báðum aðilum bréflega um staðfestingu aðilaskipta.

4. gr.

Búskaparhlé.

Lögbýli heldur greiðslumarki sínu óskertu þótt réttur til beingreiðslna falli niður vegna búskaparhlés án þess að samið sé um búskaparlok og greiddar bætur fyrir. Tilkynna skal Matvælastofnun fyrir 15. janúar ár hvert ef framleiðandi óskar eftir að fá beingreiðslur aftur að loknu hléi. Beingreiðslur greiðast handhafa frá og með 1. janúar það ár.

5. gr.

Ásetningshlutfall.

Til að fá óskertar beingreiðslur á árinu 2014 þarf handhafi að eiga að lágmarki 0,65 vetrarfóðraðar kindur fyrir hvert ærgildi greiðslumarks.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skal að fengnum tillögum framkvæmdanefndar búvörusamninga auglýsa ásetningshlutfall skv. 3. mgr. 39. gr. búvörulaga fyrir árin 2014-2017 fyrir 20. september ár hvert vegna næsta almanaksárs.

Nái ásetningur ekki því lágmarki skerðast beingreiðslur hlutfallslega. Ef greiðslumarki lögbýlisins er skipt á fleiri en einn rekstraraðila, þá skal miðað við greiðslumark og ásetning hvers rekstraraðila fyrir sig.

6. gr.

Lækkun ásetningshlutfalls.

Ásetningshlutfall hjá framleiðendum sem hafa skorið niður fé til útrýmingar bótaskyldum sjúkdómum skal á fyrsta almanaksári eftir fjártöku aðeins nema 1/3 af því sem ákveðið er samkvæmt 5. gr. og á öðru ári 2/3, til að þeir haldi fullum beingreiðslum.

Um lækkun ásetningshlutfalls á lögbýlum þar sem búfjárbeit kemur í veg fyrir eðlilega framkvæmd uppgræðslu eða veldur of miklu álagi á beitiland fer skv. 3. mgr. 39. gr. búvörulaga.

7. gr.

Gjalddagar beingreiðslna.

Beingreiðslur greiðast með níu jöfnum mánaðarlegum greiðslum 1. hvers mánaðar frá janúar til september ár hvert, þó þannig að greiðsla fyrir janúar fer fram 1. febrúar ásamt greiðslu fyrir þann mánuð. Beingreiðslur taka árlegum breytingum í samræmi við verðlagsuppfærslu fjárlaga. Ef þróun meðaltalsvísitölu neysluverðs verður önnur en verðlagsforsendur fjárlaga á árinu, skal mismunurinn leiðréttur í fjárlögum næsta árs.

8. gr.

Skerðing eða niðurfelling beingreiðslna.

Matvælastofnun er heimilt er að skerða eða fella niður beingreiðslur ef sauðfjár­framleið­andi gefur rangar upplýsingar um ásettan fjölda sauðfjár eða stundar ólög­lega sölu eða dreifingu á kjöti af heimaslátruðu sauðfé eða brýtur á annan hátt reglur eða samn­ings­bundin ákvæði um afsetningu afurða.

9. gr.

Fjármunir vegna skerðinga á beingreiðslum.

Beingreiðslum sem sparast vegna skerðingarákvæða 5. og 8. gr. skal ráðstafað sam­kvæmt ákvörðun framkvæmdanefndar búvörusamninga.

10. gr.

Málskotsheimild.

Ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu á greiðslumarki lögbýla og rétt til beinna greiðslna er heimilt að skjóta til úrskurðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra innan þriggja mánaða, sbr. VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

11. gr.

Viðurlög og gildistaka.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 99/1993 um fram­leiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið skv. lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verð­lagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 11/2008 um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2008-2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. mars 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Rebekka Hilmarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 17. mars 2014