Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 553/2015

Nr. 553/2015 24. júní 2015

REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 532/2015 um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2015.

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  a) Í stað orðsins „og“ á eftir „reglugerðar nr. 327/2013“ í 2. tl. 1. mgr. kemur: eða.
  b) 2. mgr. verður svohljóðandi: Fiskistofa skal, heimila tilfærslu á viðmiðun aflareynslu, annarra réttinda og úthlutaðra aflaheimilda á milli fiskiskipa, að hluta til eða öllu leyti, þegar um er að ræða breytingu á skipastól. Það er skilyrði þessa að fyrir liggi samþykki eigenda beggja skipa fyrir tilfærslunni sé ekki um skip í eigu sömu útgerðar að ræða.
  c) Í stað „50%“ í 3. mgr. kemur: 40%.

2. gr.

4. gr. reglugerðarinnar breytist þannig:

  a) Í stað „2.–4. tl. 2. gr.“ í 1. málsl. 4. tl. 4. gr. kemur: 1.–4. tl. 1. mgr. 2. gr.
  b) Við 1. tl. 4. gr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi aflaheimildir verið færðar milli skipa í eigu sömu útgerðar, gilda ákvæði 1. málsl. 3. mgr. 2. gr. einnig um þær aflaheimildir og fellur leyfi þess skips til makrílveiða niður, sem aflaheimildir eru fluttar til, hafi 40% af samanlögðum aflaheimildum þess ekki verið landað 20. ágúst 2015.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breyt­ingum.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. júní 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 24. júní 2015