Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Leiðréttingar:

Leiðrétt 4. desember 2008:
HTML texti: Í fyrirsögn á orðið „magndreifingu“ að vera: magngreiningu.


Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1047/2008

Nr. 1047/2008 30. október 2008

AUGLÝSING
um breytingu á reglum nr. 408/2007, um aðferðir við magndreifingu textíltrefjablandna.

Við 2. gr. reglnanna bætist nýr töluliður, d-liður, svohljóðandi:

  1. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2007/4/EB frá 2. febrúar 2007 um breytingu á II. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 96/73/EB um tilteknar aðferðir við magngreiningu textíltrefjablandna úr tveimur efnum í því skyni að laga viðaukann að tækniframförum.

2. gr.

Við 3. gr. reglnanna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem vísað er til í d-lið 2. gr., eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB (ákvörðunin í 14. árgangi, hefti nr. 60 (13. desem­ber 2007), bls. 11). EB-gerðin er jafnframt birt sem fylgiskjal með reglum þessum.

3. gr.

Framangreindar breytingar, sem innleiða tilskipun 2007/4/EB, eru settar með heimild í 18. gr. laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Neytendastofu, 30. október 2008.

Tryggvi Axelsson.

Hjördís Björk Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 17. nóvember 2008