Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 24. mars 2010 samþykkt breytt deiliskipulag fyrir land Lundar í Mosfellsdal (norðan þjóðvegar), en áður gildandi skipulag var samþykkt 22. júní 2005. Samkvæmt breyttu deiliskipulagi verður landið nýtt undir gróðrarstöð. Markaður er byggingarreitur fyrir gróðurhús og pökkunarstöð, 25.000 m² að stærð, auk byggingarreita fyrir afgreiðslubyggingu, íbúðarhús, starfsmannahús og aðrar byggingar sem tengjast starfseminni. Á landinu er kvöð um umferð að Minna Mosfelli, og á hluta næst Köldukvísl er hverfisvernd skv. aðalskipulagi. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast það þegar gildi. Við gildistöku þess fellur áður gildandi deiliskipulag úr gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 10. maí 2010, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |