Flugmálastjórn Íslands hefur ákveðið að umsækjendum um skírteini flugliða og handhöfum þeirra, flugskólum, fluglæknum og fluglæknasetrum beri frá og með 20. ágúst 2009, að fylgja leiðbeiningum skýringarefnis (Acceptable Means of Compliance (AMC)) og (Interpretive and Explanatory Material (IEM)) við JAR-FCL 1, JAR-FCL 2 og JAR-FCL 3. Ákvæði JAR-FCL 1, JAR-FCL 2 og JAR-FCL 3 voru innleidd með reglugerð nr. 401/2008 um skírteini flugliða á flugvél, reglugerð nr. 402/2008 um skírteini flugliða á þyrlu og reglugerð nr. 403/2008 um heilbrigðiskröfur flugliða. Óheimilt er að nota aðrar forskriftir en um getur í skýringarefni þessu nema ef sýnt hefur verið fram á að um jafngildar eða betri aðferðir er að ræða skv. mati Flugmálastjórnar Íslands. Með vísan til 140. gr. laga nr. 60/1998 um loftferðir með síðari breytingum og reglugerðar um flugmálahandbók útgefna af Flugmálastjórn Íslands nr. 326/2000 er ákvörðun þessi birt í flugmálahandbók Flugmálastjórnar Íslands, 3. deild (Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands). Auglýsingin öðlast þegar gildi. Reykjavík, 17. ágúst 2009. Pétur K. Maack flugmálastjóri. |