Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 31. ágúst 2011 skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 samþykkt deiliskipulag vegar að Helgafellstorfu, sem auglýst var 21. október 2010 með athugasemdafresti til 2. desember 2010. Deiliskipulagið fjallar um breytta legu aðkomugötu að húsum á Helgafellstorfu. Gatan færist norður fyrir lóð Helgafells 1 og tengist síðan inn á austurhluta Bergrúnargötu sem er ein af nýjum götum í öðrum skipulagsáfanga Helgafellshverfis. Deiliskipulagið hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 73/1997 mæltu fyrir um og öðlast það þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 13. september 2011, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |