Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 887/2013

Nr. 887/2013 24. september 2013
AUGLÝSING
um umferð í Reykjavík.

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, og að fengnum tillögum umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkurborgar hefur lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu ákveðið eftirfarandi:

  1. Að U-beygjubann verði á Snorrabraut við Bergþórugötu þegar ekið er til suðurs.
  2. Að einstefna verði í Mjóstræti til norðurs frá Bröttugötu að innkeyrslu að bílastæði á lóð Mjóstrætis 8.
  3. Að bann verði við akstri hópbifreiða á Þórsgötu.
  4. Að afmarkað verði skammtímastæði fyrir eina hópbifreið við suðurkant Njarðar­götu, neðan við Þórsgötu. Tímatakmörkun til að leggja hópbifreið verði 15 mínútur.
  5. Að afmarkað verði skammtímastæði fyrir hópbifreiðar í Lækjargötu á móts við Vonarstræti. Tímatakmörkun til að leggja hópbifreið verði 15 mínútur.

Ákvörðun þessi tekur gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, 24. september 2013.

Stefán Eiríksson.

B deild - Útgáfud.: 9. október 2013