Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 508/2011

Nr. 508/2011 17. maí 2011
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Mosfellsbæjar.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 11. maí 2011 samþykkt breytingu á deiliskipulagi miðbæjar í Mosfellsbæ, sem samþykkt var 22. desember 2010. Breytingin felst í því að að við austurmörk lóðar framhaldsskóla við Háholt er settur inn nýr byggingarreitur fyrir sorpgeymslu, 5 x 7 m að stærð.
Breytingin hefur hlotið meðferð sem óveruleg breyting samkvæmt 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, en fallið var frá grenndarkynningu þar sem breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og lóðarhafans.
Breytingin öðlast þegar gildi.

F.h. Mosfellsbæjar, 17. maí 2011,

Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 20. maí 2011