1. gr. Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 557, 25. júní 2009 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2008/2009 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum: Húnaþing vestra. Ákvæði reglugerðar nr. 557 frá 25. júní 2009 gilda um úthlutun byggðakvóta Húnaþings vestra með eftirfarandi viðauka/breytingum: | a) | Byggðakvóta Húnaþings vestra verður skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 675/2009 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa og uppfylla ákvæði reglugerðar nr. 557/2009 að öðru leyti. Skipting er eftirfarandi: 35% er skipt jafnt milli ofangreindra skipa og 65% milli ofangreindra skipa þannig að til viðmiðunar verði löndunarhæsta ár útgerðar í Hvammstangahöfn í þorskígildum talið. Viðmiðunarárin eru 3 síðustu fiskveiðiár, nú 2005/2006, 2006/2007 og 2007/2008. | | b) | Ákvæði 4. gr. reglugerðar um 15 þorskígildislesta hámarksúthlutun er fellt niður. | | c) | 6. gr. reglugerðarinnar breytist þannig: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins afla sem nemur, í þorskígildum talið, tvöföldu magni þess aflamarks sem þau fá úthlutað ... o.s.frv. |
Vesturbyggð, Patreksfjörður. Ákvæði reglugerðar nr. 557 frá 25. júní 2009 gilda um úthlutun byggðakvóta Patreksfjarðar með eftirfarandi viðauka/breytingum: | a) | Breyting á 4. gr.: Úthluta skal aflamarki hlutfallslega miðað við landaðan afla til vinnslu í Vesturbyggð frá 1. júlí 2008 til 30. júní 2009. | | b) | Breyting á 6. gr.: Fiskiskipum er skylt að landa til vinnslu innan sveitarfélagsins afla sem nemur ... o.s.frv. | | c) | Ekkert fiskiskip getur sótt um byggðakvóta nema frá einu byggðarlagi. |
Vesturbyggð, Brjánslækur. Ákvæði reglugerðar nr. 557 frá 25. júní 2009 gilda um úthlutun byggðakvóta Brjánslækjar með eftirfarandi viðauka/breytingum: | a) | Breyting á 6. gr.: Fiskiskipum er skylt að landa innan sveitarfélagsins afla sem nemur ... o.s.frv. | | b) | Ekkert fiskiskip getur sótt um byggðakvóta nema frá einu byggðarlagi. |
Vesturbyggð, Bíldudalur. Ákvæði reglugerðar nr. 557 frá 25. júní 2009 gilda um úthlutun byggðakvóta Bíldudals með eftirfarandi viðauka/breytingum: | a) | 1. gr. b-liðar verður: Eru skráð í sveitarfélaginu 1. júní 2009. | | b) | Ákvæði 4. gr. um 15 þorskígildislesta hámarksúthlutun fellur niður. | | c) | Byggðakvóta Vesturbyggðar, 34 þorskígildistonn og byggðakvóta Bíldudals 100 þorskígildistonn skal úthlutað til fiskiskipa samkvæmt lönduðum afla í Vesturbyggð, sem unninn hefur verið á Bíldudal á tímabilinu 1. mars 2009 til 30. júní 2009. | | d) | Ekkert fiskiskip getur sótt um byggðakvóta nema frá einu byggðarlagi. |
Kaldrananeshreppur. Ákvæði reglugerðar nr. 557 frá 25. júní 2009 gilda um úthlutun byggðakvóta Kaldrananeshrepps með eftirfarandi viðauka/breytingum: Ákvæði 1. mgr. 4. gr. breytist þannig: ... á tímabilinu 1. september 2008 til 31. mars 2009. 2. gr. Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 23. september 2009. F. h. r. Arndís Á. Steinþórsdóttir. Hinrik Greipsson. |