Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 37/2013

Nr. 37/2013 4. janúar 2013
REGLUGERÐ
um úthlutun tollkvóta samkvæmt sérstökum samningi Íslands og Noregs um viðskipti milli ríkjanna.

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun fjármálaráðherra á tollkvóta vegna ársins 2013 sam­kvæmt sérstökum samningi Íslands og Noregs, dags. 22. mars 2000, um viðskipti milli ríkjanna og á grundvelli 13. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, nr. 99/1993. Tollkvóti sam­kvæmt reglugerð þessari tekur til vara í tollskrárnúmeri 2005.2003, sem upprunnar eru í Noregi og eru innfluttar þaðan, sbr. bókun 4 við EES-samninginn.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

kg

%

kr./kg

Tollskrárnúmer:


2005.2003

Kartöflur:
Nasl svo sem skífur, skrúfur, hringir, keilur, stangir o.þ.h., þó ekki úr kartöflumjöli.

01.01.13- 31.12.13

15.000

0

0

3. gr.

Tollkvóta er úthlutað samkvæmt auglýsingu fjármálaráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Úthlutun er ekki framseljanleg.

Berist umsóknir um meira magn en nemur auglýstum tollkvóta skv. 2. gr. verður úthlutun miðuð við hlutfall innflutnings hvers umsækjanda miðað við heildarinnflutning allra umsækj­enda af vörum í tollskrárnúmeri 2005.2003 á tímabilinu 1. janúar 2012 til 31. desember 2012.

Umsækjanda er skylt að láta fjármálaráðuneytinu í té afrit af tollskjölum vegna vörusendinga í áðurnefndu tollskrárnúmeri sem hann flutti inn á árinu 2012 óski ráðuneytið eftir fram­lagningu þeirra.

4. gr.

Vörur sem fluttar eru inn samkvæmt úthlutuðum tollkvóta skulu hljóta tollafgreiðslu innan þess tímabils sem tilgreint er í 2. gr. Endurúthluta má tollkvóta sem ekki er nýttur innan þess frests.

5. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt XXII. kafla tollalaga, nr. 88/2005.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. mgr. 13. gr. tollalaga, nr. 88/2005. Reglu­gerðin öðlast þegar gildi og gildir til 31. desember 2013.

Fjármálaráðuneytinu, 4. janúar 2013.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Ögmundur Hrafn Magnússon.

B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2013