Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 16/2015

Nr. 16/2015 27. febrúar 2015
LÖG
um breyting á lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, með síðari breytingum (frestun nauðungarsölu).

HANDHAFAR VALDS FORSETA ÍSLANDS
   samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar,
gjöra kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og vér staðfest þau með samþykki voru:

1. gr.

    Ákvæði til bráðabirgða VI í lögunum orðast svo:

    Nú er leitað nauðungarsölu á grundvelli 6. gr. á fasteign þar sem gerðarþoli heldur heimili og hefur skráð lögheimili og um er að ræða húsnæði sem ætlað er til búsetu samkvæmt ákvörðun skipulags- og byggingaryfirvalda og ber þá sýslumanni að verða við ósk gerðarþola sem uppfyllir skilyrði 2. mgr. um að fresta í allt að þrjá mánuði í senn töku ákvörðunar um framhald uppboðs eða ráðstöfun eignar á almennum markaði. Hafi þegar verið ákveðin ráðstöfun slíkrar fasteignar til fullnustu kröfu skv. 6. gr. við framhald uppboðs eða á almennum markaði en uppboði hefur ekki verið lokið eða boð í eignina á almennum markaði samþykkt skal sýslumaður að fullnægðum sömu skilyrðum verða við ósk gerðar­þola um að fresta þeim aðgerðum í allt að þrjá mánuði í senn. Hafi uppboði lokið en sá tími sem hæstbjóðandi er bundinn við boð sitt er ekki liðinn er sýslumanni heimilt að beiðni gerðarþola og að fengnu samþykki gerðarbeiðenda og hæstbjóðanda að fresta frekari vinnslu málsins í allt að þrjá mánuði í senn að uppfylltum sömu skilyrðum.
    Skilyrði fyrir því að frestur verði veittur er að gerðarþoli sýni fram á að hann hafi sótt um leiðréttingu fasteignaveðlána samkvæmt lögum um leiðréttingu verðtryggðra fasteigna­veðlána en ríkisskattstjóri hafi ekki endanlega ákvarðað leiðréttingu eða ákvörðun ríkis­skattstjóra hafi verið kærð til úrskurðarnefndar og sé þar til meðferðar.
    Ákvæði þetta fellur úr gildi 1. október 2015.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 27. febrúar 2015.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

Einar K. Guðfinnsson.

Markús Sigurbjörnsson.

(L. S.)

Ólöf Nordal.

A deild - Útgáfud.: 27. febrúar 2015