1. gr. Tímavinna. Sérfræðingur pr. klst. | kr. | 9.500 |
2. gr. Sérvinnslur, stakar. Fyrir útkeyrslu úr skrám skal greiða einingaverð fyrir hverja færslu, þó að lágmarki kr. 9.500. Ekki er greitt einingaverð fyrir fleiri en 50.000 færslur. Við viðameiri fyrirspurnir bætist tímavinna sérfræðings, sbr. 1. gr. Lágmarksgjald fyrir úrkeyrslu úr skrám | kr. | 9.500 | Útkeyrslur allt að 10.000 færslur, pr. færsla | kr. | 7 | Útkeyrslur 10.001 – 50.000 færslur, pr. færsla | kr. | 3 |
3. gr. Áskrift að einföldum úrkeyrslum úr skrám. Hægt er að óska eftir áskrift að einföldum fyrirspurnum, ársfjórðungslega eða mánaðarlega. Það telst til einfaldrar fyrirspurnar ef upphafsvinna er undir 1 klst. og færslur undir 1.300. Árgjald fyrir slíka þjónustu er: | kr. | 15.000 |
4. gr. Sérvinnslur, endurteknar. Gera skal skriflegan samning um endurteknar sérvinnslur aðrar en þær sem falla undir 3. gr., þar sem fjöldi afhendinga á 12 mánaða tímabili er ákveðinn. Greitt er fyrir hverja afhendingu en afsláttur er veittur eftir fjölda afhendinga á tímabilinu sem hér segir: Ein afhending á ári | Fullt gjald skv. 2. gr. | Ársfjórðungslega (4 afhendingar á ári) | 50% afsláttur | Mánaðarlega (12 afhendingar á ári) | 60% afsláttur |
5. gr. Heimild til samningsgerðar, undanþágur og afsláttur. Hagstofu Íslands er heimilt að veita undanþágur og gera sérstaka samninga um upplýsingamiðlun, sem víkja frá gjaldskrá þessari. 6. gr. Gjald fyrir afhendingu gagna. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðast við vísitölu neysluverðs í okóber 2009 og skulu breytast árlega til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu. Gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu greidd áður en gögn eru afhent. 7. gr. Lagaheimild og gildistaka. Gjaldskrá þessi er sett með heimild í 14. gr. laga nr. 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð og öðlast gildi 1. janúar 2011. Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, 14. desember 2010. Árni Páll Árnason. Helga Jónsdóttir. |