Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1056/2010

Nr. 1056/2010 29. desember 2010
REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2011.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2010 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tl. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning landbúnaðarskýrslu rekstrarársins 2011.

Búsafurðir til heimanota og aðra endurgjaldslausa afhendingu þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna á rekstrarreikningi landbúnaðarskýrslu. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2011 er sem hér segir:

kr.

Mjólk

71,00 hver lítri

Egg

430,00 hvert kg

Kartöflur

70,00 hvert kg

Rófur

120,00 hvert kg

Lambakjöt

454,00 hvert kg

Kjöt af veturgömlu fé

315,00 hvert kg

Annað kjöt af sauðfé

110,00 hvert kg

Ungnautakjöt

513,00 hvert kg

Annað kjöt af nautgripum

325,00 hvert kg

Folaldakjöt

268,00 hvert kg

Annað kjöt af hrossum

113,00 hvert kg

Grísakjöt

305,00 hvert kg

Annað svínakjöt

247,00 hvert kg

Kalkúnar, endur og gæsir

507,00 hvert kg

Annað fuglakjöt

362,00 hvert kg

Fiskur

375,00 hvert kg

Reykjavík, 29. desember 2010.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2010