Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1225/2013

Nr. 1225/2013 30. desember 2013
REGLUGERÐ
um (4.) breytingu á reglugerð nr. 806/2013 um ráðstöfun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2013/2014, með síðari breytingum.

1. gr.

1. mgr. 2. gr. a orðast svo:

Úthluta skal allt að 1300 lestum af íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2013/2014 til síldveiða innan brúar í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi til og með 30. desember 2013.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og í lögum 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast reglugerðin þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2013