Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF
skjalið.
879/2009
|
1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 2. viðauka: | | a) | Ný efni með EB-tilvísunarnúmer 1329 til 1371 bætast við, sbr. fylgiskjal I með reglugerð þessari. | | | b) | Færsla fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 167 breytist sbr. fylgiskjal II. |
2. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 3. viðauka A: | | a) | Efni með EB-tilvísunarnúmer 185 til 188 bætast við viðaukann sbr. fylgiskjal IV. | | | b) | Færsla fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 10 fellur niður. | | | c) | Færsla fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 14 breytist sbr. fylgiskjal V. |
3. gr. Eftirfarandi breyting verður á 3. viðauka B: Færslur fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 57, 59 og 60 falla niður. 4. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 6. viðauka: | | a) | Færsla fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 28 breytist sbr. fylgiskjal III. | | | b) | Færsla fyrir efni með EB-tilvísunarnúmer 1 fellur niður. |
5. gr. Reglugerð þessi er sett með stoð í 17. gr. A laga nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, með síðari breytingum. Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi tilskipunum um breytingar á tilskipun 76/768/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna um snyrtivörur: | | a) | Tilskipun 2008/88/EB um breytingu á tilskipun ráðsins 76/768/EBE, um snyrtivörur, í því skyni að aðlaga II. og III. viðauka við hana að tækniframförum, sem vísað er til í 1. tl., XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2009, þann 3. júlí 2009. | | | b) | Tilskipun 2008/123/EB um breytingu á tilskipun ráðsins 76/768/EBE, um snyrtivörur, í því skyni að aðlaga II. og VII. viðauka við hana að tækniframförum, sem vísað er til í 1. tl., XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2009, þann 3. júlí 2009. | | | c) | Tilskipun 2009/6/EB um breytingu á tilskipun ráðsins 76/768/EBE, um snyrtivörur, í því skyni að aðlaga II. og III. viðauka við hana að tækniframförum, sem vísað er til í 1. tl., XVI. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 79/2009, þann 3. júlí 2009. |
Reglugerðin öðlast gildi við birtingu. Umhverfisráðuneytinu, 29. október 2009. F. h. r. Magnús Jóhannesson. Sigríður Auður Arnardóttir. Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|
B-deild - Útgáfud.:
30. október 2009
|