Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 602/2010

Nr. 602/2010 30. júní 2010
REGLUGERÐ
um (1.) breytingu á reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

a. Í stað ,,1. ágúst" í 2. mgr. kemur: 15. ágúst.

b. Við 2. mgr. bætist nýr stafliður, e. liður, sem orðast svo: Kaupandi skal hafa skráð mark í samræmi við reglugerð nr. 200/1998 um búfjármörk, markaskrár og takmörkun á sammerkingum búfjár.

2. gr.

8. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Skylt er seljanda að láta meðhöndla líflömb með lyfjum gegn sníkjudýrum fyrir flutning, á þeim svæðum eða varnarhólfum þar sem slík sníkjudýr eru talin vera landlæg.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. júní 2010.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Arnór Snæbjörnsson.

B deild - Útgáfud.: 20. júlí 2010