FORSETI ÍSLANDS gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu: 1. gr.
Við 14. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Þrotabúið tekur við réttindum og skyldum útgefanda samkvæmt afleiðusamningum sem gerðir hafa verið á grundvelli laga þessara. Kröfur samkvæmt slíkum afleiðusamningum njóta rétthæðar skv. 3. tölul. 110. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., sbr. 3. mgr. 111. gr. sömu laga.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 13. maí 2008. Ólafur Ragnar Grímsson. (L. S.) Björgvin G. Sigurðsson.
|