Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 4. júní 2008 í samræmi við 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga samþykkt breytingu á „deiliskipulagi frá Reykjalundarvegi að Húsadal". Skipulagsbreytingin felst m.a. í minniháttar breytingum á legu götunnar Reykjahvols, niðurfellingu stígs sunnan Sunnuhvols og því að reiðleið eftir Reykjahvoli er skilgreind sem reiðleið til bráðabirgða. Deiliskipulagsbreyting þessi hefur hlotið þá meðferð sem skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F. h. Mosfellsbæjar, 9. júlí 2008, Finnur Birgisson, skipulagsfulltrúi. |