Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 296/2008

Nr. 296/2008 27. mars 2008
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 357/2005 um heimild Tryggingastofnunar ríkisins til að framlengja bótagreiðslur þrátt fyrir dvöl á sjúkrahúsi eða stofnun fyrir aldraða.

1. gr.

Í stað orðanna „10. gr. laga nr. 117/1993“ í 3. mgr. 1. gr. kemur: 16. gr. laga nr. 100/2007.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr.:

  1. Í stað orðanna „grunnlífeyri, tekjutryggingu og tekjutryggingarauka einstaklings“ í 1. málsl. koma orðin: grunnlífeyri og tekjutryggingu.
  2. 2. málsl. fellur brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.:

  1. a. Orðin „eða maki eða sambúðaraðili hans“ falla brott.
  2. b. Í stað orðanna „10. gr. laga nr. 118/1993“ kemur: 9. gr. laga nr. 99/2007.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. og 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 29. gr., sbr. 21. gr., laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. apríl 2008.

Félags- og tryggingamálaráðuneytinu, 27. mars 2008.

Jóhanna Sigurðardóttir.

Ágúst Þór Sigurðsson.

B deild - Útgáfud.: 28. mars 2008