Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 613/2011

Nr. 613/2011 7. júní 2011
AUGLÝSING
um breytingu á deiliskipulagi í Seltjarnarneskaupstað.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Seltjarnarneskaupstaðar samþykkt eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi í Seltjarnarneskaupstað:

Deiliskipulag Bakkahverfis – Unnarbraut 9.
Um er að ræða breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar að Unnarbraut 9, þar sem leyfilegt nýtingarhlutfall hefur verið aukið úr 0,35 í 0,41, samhliða því að heimilt verður að reisa viðbyggingu á efri hæð yfir bílskúr. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags.

Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslögin mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Seltjarnarnesi, 7. júní 2011.

Örn Þór Halldórsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.

B deild - Útgáfud.: 24. júní 2011