Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar hefur þann 4. júní 2015 skv. heimild í viðauka I við samþykkt nr. 596/2011 um breytingu á samþykkt um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Dalsbús í Helgadal, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 7. maí 2015 með athugasemdafresti til 5. júní 2015. Engin athugasemd barst en allir þátttakendur lýstu sig samþykka breytingunni með áritun á uppdrátt. Breytingin er sú að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og tengdar byggingar stækkar. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 5. júní 2015,
Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi.
|