Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1143/2007

Nr. 1143/2007 15. nóvember 2007
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 573/2005 um inntökuskilyrði í Háskóla Íslands.

1. gr.

Annar málsliður 13. gr. breytist og verður svohljóðandi:

Allir nemendur skulu hafa lokið áföngunum Efnafræði 103 og Efnafræði 203 og stúdentar af sjúkraliðabraut skulu auk þess hafa lokið að minnsta kosti 15 einingum í íslensku, 6 einingum í stærðfræði og 9 einingum í ensku.

2. gr.

Gildistaka og lagastoð.

Ákvæði reglna þessara, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli laga um Háskóla Íslands nr. 41/1999, öðlast gildi 1. júlí 2008.

Háskóla Íslands, 15. nóvember 2007.

Kristín Ingólfsdóttir.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 4. desember 2007