Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 51/2007

Nr. 51/2007 27. mars 2007
LÖG
um breyting á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, með síðari breytingum.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.
    Síðari málsliður 1. mgr. 14. gr. laganna orðast svo: Vísitala sem reiknuð er og birt í tilteknum mánuði gildir um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár frá fyrsta degi þar næsta mánaðar.

2. gr.
    Við lögin bætast tvö ný ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

    a. (VII.)
    Vísitala sem reiknuð er og birt í janúarmánuði 2008 og grundvallast á verðupplýsingum miðað við verðlag tvo fyrstu virka daga janúar skal gilda um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár í febrúar 2008.

    b. (VIII.)
    Vísitala sem reiknuð er og birt í janúarmánuði 2008 og grundvallast á verðupplýsingum miðað við verðlag í um það bil vikutíma um miðjan janúar skal gilda um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár í mars 2008.

3. gr.
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008.

Gjört á Bessastöðum, 27. mars 2007.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)

Jón Sigurðsson.

A deild - Útgáfud.: 2. apríl 2007